Viðtöl, örfréttir & frumraun
Pop-up kvöld: Gísli Matt mætir á Le KocK – aðeins þetta eina kvöld
Miðvikudaginn 9. apríl frá kl. 17:00 til 21:00 breytist Le KocK við Tryggvagötu 14 í Reykjavík í leikvöll fyrir bragðlauka, þegar hinn einstaki Gísli Matt tekur yfir eldhúsið og býður gestum upp á úrval rétta sem hann er þekktur fyrir – sett fram í sínum einstaka stíl og með smá Le KocK tvisti.
Á matseðlinum má finna heimsfrægu umami þorskvængina, djúsí smash borgara, kleinuhringi með mysukaramellu og ekki síst hinn goðsagnakennda þorsk borgara með piparrótarsósu og lamb x.o. kartöflubrauði.
Viðburðurinn er samstarfsverkefni milli Gísla Matt og Le KocK, þar sem óheflað andrúmsloft, frumleg matargerð og djörf bragðsamsetning fara hönd í hönd.
Aðeins þetta eina kvöld!
Þeir sem þekkja til vita að Gísli lætur ekkert eftir sér þegar kemur að því að bjóða upp á eftirminnilega matarupplifun – og þetta kvöld verður engin undantekning.
Fyrstir koma, fyrstir fá – því mælt er með því að mæta tímanlega!
Hvar? Le KocK, Tryggvagötu 14, Reykjavík
Hvenær? Miðvikudaginn 9. apríl, kl. 17:00–21:00
Sjáðu matseðilinn hér að neðan:
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Keppni4 dagar síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Markaðurinn3 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Markaðurinn3 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
-
Markaðurinn3 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFrá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið
-
Starfsmannavelta10 klukkustundir síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt12 klukkustundir síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi




