Keppni
Viceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
Jameson kokteilakeppnin Dublin Meets Reykjavík fór fram á barnum The Dubliner fimmtudaginn 5. mars, þar sem tíu barþjónar kepptu til úrslita eftir að hafa komist áfram úr undankeppni sem fram fór þriðjudaginn 3. mars. Keppnisfyrirkomulagið fólst í því að hver keppandi skyldi nota að lágmarki 3 sentilítra af Jameson viskíi í sínum drykk.
Það var Andri Davíð Pétursson, betur þekktur sem Viceman, sem stóð uppi sem sigurvegari með drykkinn Papi – Physic Garden. Í öðru sæti hafnaði Róbert Aron Garðarsson Proppé frá Drykk í Pósthús Mathöll með Cupán Táe og í þriðja sæti Svanhvít Thea Árnadóttir frá Veðri með Fig-a-licious.
Ljósmyndir með fréttinni tók Hafliði Breiðfjörð.
Sex ár frá síðustu kokteilakeppni
Sigurinn markar ákveðna endurkomu hjá Andra, sem hafði ekki tekið þátt í kokteilakeppni í sex ár. Þótt hann hafi ekki verið sýnilegur á keppnisgólfinu undanfarin ár hefur kokteilabransinn þó aldrei verið langt undan. Hann hefur starfað sem flugþjónn og er á leið til starfa hjá Icelandair frá og með 1. apríl.
Samhliða því hefur hann verið með annan fótinn hjá 64° Reykjavík Distillery, þar sem hann hefur komið að framleiðslu, sölu og markaðsmálum, auk þess sem hann hefur tekið að sér barþjónustu við ýmis tilefni.
Hestamennska, fjölskylda og keppnisskapið
Utan starfsins hefur fjölskyldulífið og hestamennskan tekið mikið pláss. Andri segir að þar hafi keppnisskapið líka fengið útrás, enda eigi hann tvær dætur sem hafi staðið sig vel í hestaíþróttum.
„Ég á tvær dætur sem eru mjög áhugasamar um keppni og hafa verið að gera það gott í keppnum á sviði hestamennsku,“
segir Andri í samtali við Veitingageirinn.is.
Sjálfur hefur hann sömuleiðis verið að keppa og stefnir á að gera meira af því. Þrátt fyrir það viðurkennir hann fúslega að keppnismaðurinn í honum hafi aldrei alveg þagnað. Hann segir að ein helsta ástæða þess að hann skráði sig aftur til leiks hafi einfaldlega verið sú að hann hafi sterkt keppnisskap. Verðlaunaferð til Dublin og heimsókn í Jameson Distillery hafi svo ekki skemmt fyrir.
„Fyrsta ástæðan er auðvitað sú að ég hef alltaf haft gaman af því að keppa,“
bætir hann við.
Að hans sögn hvarflaði það aldrei að honum að hann væri orðinn of lengi frá eða utan takts við barheiminn. Þótt sex ár séu langur tími segir hann áhugann á bragðsamsetningum og hráefnum hafa verið stöðugan allan tímann. Reyndar segist hann hafa þróað kokteilaprógrömm fyrir stóran hluta þeirra keppna sem hafi verið auglýstar á síðustu árum, þó hann hafi oft stoppað rétt áður en hann ýtti á senda takkann.
Að þessu sinni hafi hann hins vegar fundið að hugmyndin væri nógu sterk og tíminn nægur til að framkvæma hana almennilega.
Undirbúningurinn hefst löngu fyrir keppniskvöld
Undirbúningurinn fyrir keppnir hefst að hans sögn alltaf á sama hátt. Hann les sig vel til um fyrirkomulag, rýnir í dómarablöð, skoðar hvort þemað höfði til sín og metur hvort hann geti varið nægum tíma í verkefnið. Þegar sköpunargleðin kviknar fer allt af stað eins og púsl sem raðar sér saman. Hann vinnur hugmyndina stöðugt í huganum dagana fyrir keppni og mætir síðan til leiks búinn að fara í gegnum ótal sviðsmyndir áður en drykkurinn er frumfluttur fyrir dómara.
Jameson keppnin höfðaði sérstaklega sterkt til hans. Hann segist elska Írland og telja Jameson einstaklega gott viskí til að byggja kokteila á. Sögulegar tengingar Íslands og Írlands hafi svo gefið honum fjölmargar leiðir til að móta heildstætt kokteilaprógramm.
Sigurdrykkur með sögulegar rætur
Sigurdrykkurinn Papi – Physic Garden byggir einmitt á þeim tengingum. Nafnið vísar til Papa, írsku munkanna sem taldir eru hafa dvalið hér á landi áður en norrænir menn námu það, og einnig til svokallaðra lækningagarða, Physic Garden, þar sem slíkar jurtir voru ræktaðar. Andri byggði hugmyndina að drykknum meðal annars á mjöð, hunangi og mjaðjurt, en mjaðjurtin gegnir lykilhlutverki í bragðmyndinni.
Hann lýsir henni sem einu magnaðasta bragði sem finna megi í íslenskri náttúru og segir sigurdrykkinn sérstaklega væntanlegan einmitt vegna þess að hann náði að byggja hann á hráefni sem honum þykir afar vænt um.
„Mjaðjurt, eins og nafnið gefur til kynna, var notuð sem bragðbætir í mjöð og er eitt magnaðasta bragð sem við eigum í íslenskri náttúru,“
segir Andri.
Í drykknum notar hann einnig rabarbaralíkjör frá 64° Reykjavík Distillery, sem hann segir virka eins og fullkominn bakraddasöngvari í kokteil. Líkjörinn gefi fyllingu og bakgrunnsbragð sem styðji vel við mjaðjurtina og hunangið. Hann tengir þetta jafnframt við söguna, bæði með vísun í lækningajurtir og írska munka og svo aftur til sögu eimingar á Írlandi, sem síðar lagði grunninn að írsku viskíi.
Að mati Andra var eitt af markmiðum hans að sýna fram á hversu sterkt Jameson er sem kokteilaviskí. Hann segir marga sækja sjálfkrafa í bourbon eða rúg þegar kokteilar með sour-ívafi eru annars vegar, en Jameson hafi þá sérstöðu að vera ekki yfirþyrmandi í bragði en hafi samt nægilega mikla vigt til að halda sér þegar rétt er unnið með önnur hráefni. Í Papi – Physic Garden hafi sérstaklega myndast seiðandi eftirbragð þar sem mjaðjurt og Jameson ná saman með eftirminnilegum hætti.
„Allt samkvæmt plani“
Þegar úrslitin voru kunngjörð upplifði hann sigurinn sem bæði mikinn heiður og staðfestingu á vel unnu prógrammi. Hann viðurkennir að hann fari almennt ekki í keppnir til að taka þátt heldur til að vinna þær. Um leið bætir hann við í léttum tón að að öðru leyti hafi þetta allt bara verið samkvæmt plani.
Það kom í raun lítið óvænt upp á, hvorki í undirbúningi né á keppniskvöldinu sjálfu. Þvert á móti segir hann að það hafi verið nær undarlegt hvað allt small vel saman strax í fyrstu tilraunum. Reynslan hafi kennt honum að þegar hlutirnir virki sé mikilvægt að kunna að stíga skref aftur á bak og hætta að eiga við það sem þegar er orðið gott. Á sjálfu keppniskvöldinu hafi prógrammið gengið nákvæmlega upp eins og hann lagði það upp með.

Skipuleggjendur mótsins, Steinþór Einarsson vörumerkjastjóri Mekka og Ómar Vilhelmsson hjá Barþjónaklúbbi Íslands
Tengdapabbi með í viskíferð til Dublin
Með sigrinum fylgir verðlaunaferð til Dublin og heimsókn í Jameson Distillery. Þar er Andri þegar farinn að hugsa ferðafélagana, en hann segir að tengdapabbi sinn hafi löngum verið mikill félagi í eimingarhúsaferðum.
„Við tengdapabbi minn eigum það sameiginlegt að hafa gaman af því að fara í distillery-túra og ég var í raun löngu búinn að ákveða að hafa hann með mér í Jameson-túrinn ef ég skyldi vinna,“
segir Andri.
Þá gæti vinur hans Snorri úr Reykjavík Distillery einnig slegist í hópinn. Dublin er að hans sögn ein af uppáhaldsborgum hans og staður sem hann þreytist aldrei á að heimsækja.
- Sigurvegarar Jameson keppninnar slógu á létta strengi eftir spennandi úrslit á The Dubliner.
Samheldni í íslenskri barþjónamenningu
Andri lýsir stemningunni í úrslitunum sem mjög góðri. Honum hafi þótt sérstaklega gaman að hitta bæði gamla kunningja og ný andlit í faginu. Hann nefnir að þar hafi verið margir ungir og afar efnilegir barþjónar sem hann hafi fylgst með úr fjarlægð undanfarin ár.
„Það var einstaklega gaman að hitta mörg ný andlit og vissulega vini mína sem ég þekkti fyrir líka,“
segir Andri.
Þótt hann hefði viljað sjá fleiri gesti fylgjast með sjálfri keppninni segir hann samkeppnina á milli keppenda hafa verið heilbrigða og jákvæða, þar sem barþjónar hvöttu hver annan áfram.
Um stöðu barþjónamenningar á Íslandi hefur Andri bæði hlý orð og skýrar skoðanir. Hann segir íslenska barþjóna vera samstígan hóp sem kunni að samgleðjast kollegum sínum og að það sé mikill styrkur. Um leið telur hann að í keppnisbarþjónustu megi enn sjá skort á framþróun í sviðsframkomu og undirbúningi.
Þar sé lykilatriði að rýna í dómarablöð, fylgjast með erlendum sigurvegurum og byggja heildstæð kokteilaprógrömm sem safna stigum markvisst. Að hans mati snýst keppnisbarþjónusta fyrst og fremst um að fyrirbyggja mistök, hafa allt á hreinu og selja dómurum sannfærandi hugmynd um hvers vegna maður eigi sigurinn skilinn.
Smekkur gesta hefur þróast
Hann telur einnig að smekkur gesta hafi breyst til hins betra á síðustu árum. Fólk sé opnara fyrir nýjungum og óvæntum hráefnum en áður. Sjálfur hefur hann löngum sérhæft sig í því að vinna með hráefni sem fáir þekkja eða nota og segir það eitt það skemmtilegasta við fagið að fylgjast með viðbrögðum fólks þegar það smakkar eitthvað sem það getur ekki alveg komið fyrir sig.
Innblástur frá Íslandsmeistara
Áhugi hans á kokteilum og þróun eigin drykkja kviknaði snemma. Honum er minnisstætt þegar Guðmundur Sigtryggsson, sem hann lýsir sem sínum mentor í barfræðum, varð Íslandsmeistari barþjóna með drykknum Harpa.
Það sem festist hvað sterkast í minni Andra voru ekki aðeins bragðið sjálft heldur pælingarnar á bak við þróun drykksins og hvernig hægt væri að byggja heila hugmyndafræði inn í kokteil. Þar hafi í raun kviknað hugsunin um að hann gæti búið til sína eigin kokteila frá grunni.
Hvernig Viceman varð til
Viðurnefnið Viceman, sem margir tengja sterkt við Andra, á sér líka sína sögu. Það varð til þegar hann sigraði fyrstu World Class keppnina á Íslandi fyrir tíu árum og fór til Miami að keppa fyrir Íslands hönd. Í þeirri tengingu varð til leikur að orðunum þar sem Iceman breyttist í Viceman með skírskotun í Miami Vice. Nafnið vakti ýmis viðbrögð í fyrstu, en hefur síðan fest sig við hann.
„Fólki fannst þetta voðalega asnalegt til að byrja með, en flestir sem þekkja mig best eru orðnir frekar vanir þessu viðurnefni,“
segir Andri að lokum.
Verðlaunadrykkir efstu þriggja
Hér fyrir neðan eru verðlaunadrykkir efstu þriggja keppenda:
1. sæti. Andri Davíð Pétursson, Viceman. Papi – Physic Garden
45 ml Jameson
20 ml 64° rabarbaralíkjör
40 ml blóma- og hunangscordial
Innblástur drykkjarins var að setja tengingar Íslands og Írlands fram í fljótandi formi.
2. sæti. Róbert Aron Garðarsson Proppé, Drykk í Pósthús Mathöll. Cupán Táe
30 ml Jameson
30 ml Jameson Stout, fituskolað með kaffi og smjöri
20 ml gulrótacordial
20 ml gulrótarinfúserað amaro
1 dash tobacco bitters
Drykkurinn var framreiddur með írskum stout-snittum með Baileys og Guinness-rjóma til hliðar.
Innblásturinn byggði á írskri og breskri hefð afternoon tea, þar sem sterk te eða kaffi og sætur biti fara saman. Hugmyndin var að tvinna írsk hráefni og írskar hefðir saman í einum drykk.
3. sæti. Svanhvít Thea Árnadóttir, Veður. Fig-a-licious
60 ml fíkjuinfúserað Jameson Irish Whiskey
22 ml jalapeño-hunang
4 dropar saline solution
3 dash walnut bitters
Drykkurinn var hrærður og skreyttur með aged Havarti osti.
Innblásturinn kom frá osti sem Svanhvít hafði oft fengið hjá vini sínum frá Dublin. Úr varð hugmynd að drykk þar sem sterkt og sætt mætist í jalapeño-hunanginu.
Vídeó
Ef Instagram færslan birtist ekki hér fyrir neðan er ráð að endurhlaða síðuna (e. refresh).
View this post on Instagram
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Frétt3 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn6 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Keppni2 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Markaðurinn1 dagur síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Markaðurinn3 dagar síðanGóð þjónusta skiptir sköpum í veitingarekstri
-
Bocuse d´Or23 klukkustundir síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís















































