Smári Valtýr Sæbjörnsson
Verðmerkingar í bakaríum eru langt frá því að vera viðunandi
Dagana 17. – 19. febrúar sl. gerði Neytendastofa athugun á ástandi verðmerkinga í 46 bakaríum á höfuðborgarsvæðinu. Athugað var hvort verðmerkingar væru í lagi í borði, gos- og mjólkurkælum og öðrum hillum sem voru til staðar.
Athugasemdir voru gerðar við 13 bakarí, af þeim voru fimm verslanir Bakarameistarans en þær voru Bakarameistarinn Austurveri, Glæsibæ, Húsgagnahöllinni, Smáratorgi og Suðurveri, stofnunin gerði einnig athugasemd við Jóa Fel Holtagörðum, Hringbraut, Kringlunni og Litlatúni, Kökuhornið Bæjarlind, Hverafold Bakarí, Fjarðarbakarí í Grafarholti og Sveinsbakarí Hólagörðum.
Sérstaklega var tekið eftir vörum sem voru á tilboði t.d rjómabollur sem voru merktar með 50% afslætti eða tvær fyrir eina en upprunalegt verð rjómabollanna kom hvergi fram. Upprunalegt verð vöru sem er á útsölu eða á tilboði þarf alltaf að koma skýrt fram.
Þetta er mikil afturför frá síðustu könnun sem gerð var haustið 2013 en þá voru verðmerkingar í borði í góðu lagi hjá 92% bakaría en nú aðeins 77%. Framför var þó á verðmerkingum í kælum þar sem 83% voru í lagi núna miðað við 69% árið 2013, að því er fram kemur á vef Neytendastofunnar.
Augljóst er að verðmerkingar í bakaríum eru langt frá því að vera viðunandi og þurfa fyrirtækin að fara vel yfir verðmerkingar og verklag í bakaríum sínum og bregðast fljótt við tilmælum Neytendastofu til að forðast sektir.
Mynd: úr safni
![]()
-
Frétt3 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Keppni1 dagur síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Bocuse d´Or6 klukkustundir síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanEndurnýjaðu ræstibúnaðinn fyrir veturinn




