Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Vel heppnað Síldarævintýri á Siglufirði – Myndir

Birting:

þann

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Eftir tveggja ára hlé var Síldarævintýrið á Siglufirði haldið á ný um helgina með pompi og prakt, en með breyttum áherslum. Munar þar mestu um að ekki var stórt svið í miðbænum heldur var dagskráin samansett af mörgum smærri viðburðum, innan dyra sem utan.

Á fimmtudeginum hófust herlegheitin með götugrilli víðsvegar um bæinn sem var mjög vel sótt af bæjarbúum og gestum og var grillað á tíu stöðum í bænum.

Kjarnafæði var á meðal þeirra styrktaraðila sem gáfu íbúum kjöt á grillið.

Myndir frá öllum grillstöðunum má skoða með því að smella hér.

Þetta var sannkölluð fjölskylduhátíð með fjölda viðburða fyrir alla aldurshópa þar sem allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi, en dagskrána í heild sinni má sjá hér.

Svangur eða þyrstur á Síldarævintýri?

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Síldarminjasafn Íslands bauð upp á síldarhlaðborð

Í þessu 1200 manna samfélagi á Siglufirði eru margir flottir og fjölbreyttir veitingastaðir og má þar nefna Hannes Boy, Harbour House Café, marókkustaðinn á Hótel Siglunesi, veitingastaðinn Sunnu sem staðsettur er í Hótel Sigló og veitingastaðinn Torgið sem staðsettur er í hjarta bæjarins.

Á veitingastaðnum Torginu myndaðist skemmtilegt líf og fjör fram á nótt þar sem gullnar veigar á skálum og lifandi tónlist sem tónlistarfólk Siglufjarðar töfraði fram.

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Daníel Pétur Baldursson matreiðslu.- og veitingamaður Torgsins passaði upp á að enginn yrði þyrstur í miðbænum.

Fingur annarrar handar duga ekki til að telja upp öldurhúsin sem buðu gesti velkomna á Síldarævintýrið á Siglufirði. Þau voru opin fram eftir kvöldi og sum fram á nótt á Síldarævintýri og buðu upp á lifandi tónlist og ýmsa viðburði.

Aðalbakarí hefur tekið miklum stakkaskiptum síðustu ár og er eitt huggulegasta kaffihús landsins og þar er hægt að fá eitthvað sterkt út í kaffið eða bara eitt og sér. Hjá Harbour House Café skapast oft mjög svo skemmtileg stemning jafnt innandyra sem utan þegar degi tekur að halla.

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Aðalbakarí bauð m.a. upp á lifandi tónlist. Daníel Pétur Daníelsson spilar hér falleg lög fyrir gesti og gangandi.

Lobbý bar á Sigló Hótel er góður staður fyrir þá sem vilja kasta mæðinni eftir erilsaman dag. Hægt er að sitja úti í góða veðrinu og dást að útsýninu eða njóta arinelds inni við í koníaksstofunni.

Kveldúlfur bar og bús er einstaklega skemmtilegur bar sem minnir um sumt meira á safn því þar er margt skemmtilegra muna og mynda. Á Kveldúlfi var t.a.m. boðið upp á Bingó og pub-quiz og lifandi tónlist fram á nótt á Síldarævintýrinu.

Veitingahjónin Hákon Sæmundsson matreiðslumaður og Valgerður Þorsteinsdóttir eigendur fiskbúðarinnar á Siglufirði buðu upp á fiskisúpu og klassíska breska réttinn Fish & chip ásamt ferskum fiski beint úr fiskborðinu.

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Veitingahjónin Hákon Sæmundsson matreiðslumaður og Valgerður Þorsteinsdóttir eigendur fiskbúðarinnar á Siglufirði.

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Fish & chip hjá fiskbúðinni

Kaffi Rauðka bauð upp á útigrill þar sem í boði voru kjúklingaspjót og grillaðir bananar.

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Bjórinn Segull 67 er bruggaður í samnefndu brugghúsi á Siglufirði. Á Síldarævintýrinu var boðið upp á nokkrar brugghúskynningar og smökkun og fjölbreytta dagskrá. Í brugghúsinu eru einnig flottir barir, sem voru opnir fram á kvöld, og aðstaða öll hin glæsilegasta til að taka á móti gestum.

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Fjölmennt var hjá brugghúsinu

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Segull 67 – Grillveisla.
Bratwurst pylsur eins og þær gerast bestar, öl og lifandi tónlist

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Segull 67 – Fornbílasýning.
Glæsilegir bílar voru til sýnis

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Hjá Segli 67 voru sölubásar þar sem hægt var að kaupa ýmsar heimagerðar vörur

Síldarævintýri á Siglufirði 2019

Mjöðurinn rann í stríðum straumum

Myndir: Smári / Veitingageirinn.is

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið