Nemendur & nemakeppni
Útskriftarnemendur Hótel- og matvælaskólans í MK tóku þátt í ýmsum keppnum og krefjandi verkefnum
Útskrift Hótel-, og matvælaskólans í Menntaskólanum í Kópavogi fór fram við hátíðlega athöfn í Digraneskirkju í síðustu viku, föstudaginn 20. desember. Þá voru brautskráðir 39 stúdentar í MK, átta framreiðslumenn, 15 matreiðslumenn, einn kjötiðnaðarmaður, einn matreiðslumeistari og 15 matartæknar. Alls brautskráðust 79 nemar á haustmisseri frá MK, að því er fram kemur í tilkynningu frá skólanum.
Metaðsókn var í skólann fyrir skólaárið 2024-2025. Einnig bárust fjölmargar umsóknir nú um áramót fyrir vorönn 2025. Það er ánægjulegt að sjá hversu margir vilja stunda nám við skólann en því miður þurfti að vísa mörgum góðum nemendum frá. Það er erfitt að geta ekki boðið öllum skólavist.
Haustönnin einkenndist af mikilli gleði. Nemendafélag MK stóð fyrir nýnemaferð í Vindáshlíð og kvöldvöku í skólanum. Kennarar félagsfræðideildar stóðu fyrir pallborðsumræðum þar sem frambjóðendur til alþingiskosninga mættu og svöruðu krefjandi spurningum frá áhugasömum nemendum. Gettu betur liðið okkar æfði stíft fyrir undankeppnina sem hefst í byrjun janúar og nemendur fóru í námsferð til Danmerkur. Samstarf hefur verið við Molann, miðstöð unga fólksins í Kópavogi, þar sem nemendum býðst að hittast á kvöldin og spila, spjalla o.fl.
Nemendur Hótel- og matvælaskólans í MK tóku þátt í ýmsum keppnum og krefjandi verkefnum. Þeir tóku þátt í kökuskreytingarkeppni, keppni í bakstri, tóku þátt í Slow food viðburði sem haldinn var í Grasagarðinum og settu upp Street food viðburð í skólanum þar sem þeir kynntu ólíkar matarhefðir frá ólíkum löndum. Nokkrir matreiðslunemar fóru til Noregs og tóku þátt í Nordic young Chef keppni en úrslitakeppnin var haldin í Hörpu í tengslum við Arctic Circle.
Afrekssvið skólans hefur laðað að sér marga sterka nemendur. Á sviðinu eru rúmlega 300 nemendur sem koma frá 40 íþróttafélögum og stunda um 25 ólíkar íþróttagreinar. Markmiðið með afrekssviðinu er að koma til móts við nemendur sem vilja ná árangri bæði í námi og íþróttum. Hlutverk okkar í MK er m.a. að styðja við ungt og efnilegt íþróttafólk til að auðvelda þeim að stunda nám samhliða íþróttaiðkun. Það hefur verið eftirtektarvert að sjá hversu mörgum nemendum á afrekssviðinu hefur tekist að skara fram úr bæði í námi og í sinni íþróttagrein.
Fagstjóri og kennarar afrekssviðsins fóru nýverið til Finnlands en tilgangur ferðarinnar var að taka þátt í að móta samvinnuvettvang fyrir framúrskarandi afrekssvið í framhaldsskólum í Evrópu.
Forseti bæjarstjórnar, Elísabet Berglind Sveinsdóttir, afhenti útskriftarnemum viðurkenningar úr Viðurkenningarsjóði MK sem stofnaður var af bæjarstjórn Kópavogs á 20 ára afmæli skólans árið 1993. Tveir nemar hlutu viðurkenningu að þessu sinni: Nýstúdentinn, Alexander Már Bjarnþórsson með meðaleinkunnina 9,51 á stúdentsprófi og nýútskrifaður framreiðslumaður, Inga Rut Ómarsdóttir fyrir hæstu meðaleinkunn í verknámi.
Rótarýklúbbur Kópavogs veitti nýstúdent, Alexander Má Bjarnþórssyni, viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í raungreinum.
Rótarýklúbburinn Borgir veitti nýútskrifuðum matreiðslumanni, Óðni Birgissyni, viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í sérgreinum verknáms.
Myndir: mk.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFrá síldartunnum til viskítunna
-
Markaðurinn6 dagar síðanLandsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
-
Markaðurinn6 dagar síðanInnnes kynnir nýtt jógúrt frá Frischli
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanMichelin-hjónin hætta skyndilega á À L’aise tveimur mánuðum eftir nýja Michelin-stjörnu
-
Markaðurinn6 dagar síðanLangar þig að læra að tína villta sveppi?
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanC.V.N.E. valið evrópski framleiðandi ársins









