Nemendur & nemakeppni
Ungir kokkar sýndu snilld sína með þara – Myndir
Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar tók á móti áhugaverðum gestahópi í Skjaldbreið nú á dögunum. Hópurinn kom á vegum Eydísar Jónsdóttur hjá Zeto, sem hefur sérhæft sig í nýtingu sjávargróðurs og leitast við að finna nýjar leiðir til að koma þara að í matargerð og daglegu lífi.
Alls settust 32 gestir til borðs og nutu veitinga sem kokkanemar og kennarar úr Hótel- og matvælaskólanum í MK elduðu af alúð. Þema dagsins var þari, og fékk hráefnið að njóta sín í ólíkum og frumlegum réttum. Vel tókst til og hlutu verðandi kokkar mikið hrós fyrir sinn þátt í viðburðinum.
Eydís Mary Jónsdóttir, land- og umhverfisfræðingur, lýsti ánægju sinni með daginn:
„Kærar þakkir fyrir okkur. Húsið og umhverfið allt dásamlegt. Það var eins og að ganga inn í töfraveröld að stíga inn í húsið þegar allt var komið í sinn svip.“
Eydís Mary Jónsdóttir er land- og umhverfisfræðingur og stofnandi fyrirtækisins Zeto ehf. Hún hefur í störfum sínum lagt sérstaka áherslu á að kynna fjölbreytta möguleika íslenskra matþörunga og hvernig hægt er að nýta þessa verðmætu auðlind á sjálfbæran hátt.
Hún er einn af höfundum bókarinnar Íslenskir matþörungar: ofurfæða úr fjörunni, sem vakti mikla athygli þegar hún kom út. Meðhöfundar hennar eru matreiðslumeistarinn Hinrik Carl Ellertsson, sagnfræðingurinn Silja Dögg Gunnarsdóttir og ljósmyndarinn Karl Petersson. Bókin, sem sameinar fræðilega umfjöllun, matargerð og myndlist, var meðal annars tilnefnd til Fjöruverðlaunanna.
Skjaldbreið reyndist hinn fullkomni vettvangur fyrir þennan einstaka viðburð þar sem hefð, menning og nýsköpun í matargerð mættust í senn.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanArnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
-
Markaðurinn3 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍsak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanEyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanJapanskt gin sækir fram þrátt fyrir samdrátt í áfengissölu
-
Frétt1 dagur síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt












