Bocuse d´Or
Þráinn Freyr næsti Bocuse d´Or keppandi
Bocuse dOr Akademían á Íslandi kynnti á Grand hóteli á sýningunni StórEldhúsið, næsta keppanda sem fer fyrir Íslands hönd í undankeppni fyrir Bocuse d´Or matreiðslukeppnina í LYON í Frakklandi sem haldin verður að þessu sinni í janúar 2011, en sjálf undankeppnin verður Genf í Sviss dagana 7. – 8. júní 2010.
Keppandinn verður Þráinn Freyr Vigfússon aðstoðar-yfirmatreiðslumaður í Grillinu. Þráinn hefur einnig áunnið sér titilinn Matreiðslumaður ársins í árlegri keppni mateiðslumanna sem haldin er á vegum Klúbbs Matreiðslumeistara. Aðal þjálfari Þráins verður Hákon Már Örvarsson, sem á sínum tíma hreppti 3. sætið í þessari keppni árið 2001.
Sturla Birgisson verður einnig kjölfesta í öllum undirbúningi fyrir keppnina, en hann verður einn af 24 dómurum í keppninni. Þeir Friðgeir Ingi Eiríksson, Ragnar Ómarsson og Björgvin Mýrdal, sem tekið hafa þátt í þessari keppni fyrir Íslands hönd, í þessari erfiðustu einstaklings matreiðslukeppni í heiminum, munu svo leggja sitt að mörkum við verkefnið og þjálfun Þráins.
Þátttaka í keppni sem þessari er mjög kostnaðarsöm og án góðra styrktaraðila væri þetta ekki framkvæmanlegt.
Styrktaraðilar að þessu verkefni eru; Ekran, Ó.Johnson & Kaber, Dreifing, Fastus, Radisson SAS, Samtök ferðaþjónustunar og Ólafur Jóhannesson sýningarhaldari StórEldhúsið.
Mynd: Sveinbjörn Úlfarsson
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag




