Uppskriftir
Tebollur með rúsínum eða súkkulaðibitum
Einfaldar og góðar hvort heldur með rúsínum eða súkkulaðibitum sem má líka alveg sleppa og setja eitthvað annað saman við en sú sígilda og upphaflega uppskrift var alltaf með rúsínum.
1 föld uppskrif (bætið helming við til að gera hana tvöfalda)
250 gr hveiti
2 tsk lyftiduft
1 dl sykur (100 gr)
125 gr smjörlíki
½ dl rúsínur eða súkkulaði (eða bæði)
1 tsk kardimommur eða vanilludropa
1 stk egg
1 dl mjólk
Aðferð:
Þeytið saman smjör og sykur í 3-4 mínútur.
Bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið á milli.
Bætið kardimommu eða vanilludropum saman við.
Hrærið þurrefnunum saman og bætið út í ásamt mjólkinni og rúsínum eða súkkulaðibitunum.
Gætið þess að hræra ekki mikið eftir að hveitið er komið út í.
Setjið deigið með tveimur matskeiðum eða stórri ísskeið á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Hver bolla hjá mér var ca. tvær vel fullar matskeiðar af deigi. Ég hafði þær svona miðlungsstórar. Bakið í 8-10 mínútur eða þar til bakaðar í gegn og fallega gullinbrúnar.
Kanelsykri stráð yfir
Hitið ofn í 180 gráður með blæstri.
Höfundur og myndir: Ingunn Mjöll Sigurðardóttir – islandsmjoll.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn6 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn6 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn6 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni2 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn3 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag







