Frétt
Te & kaffi og Innnes í samstarf á kaffimarkaðnum
Te & Kaffi og Innnes hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér að þjónusta á kaffi- og vélbúnaði Te & Kaffi á fyrirtækja- og veitingamarkaði verður í höndum Innness. Hið sama gildir um meirihluta smásölumarkaðarins.
Innnes verður dreifingaraðili á kaffivörum Te & Kaffi og jafnframt sjá um uppsetningu, þjónustu og viðhald á kaffivélum fyrirtækisins. Samstarfið mun hafa í för með sér tíðari og betri þjónustu fyrir viðskiptavini Te & Kaffi enda starfar hjá Innnes öflugur hópur starfsmanna sem leggur höfuðáherslu á lipra og góða þjónustu og persónuleg samskipti við viðskiptavini.
Þetta gefur okkur betra rými til að sinna okkar kjarnastarfsemi sem er framleiðsla á gæðakaffi og rekstur kaffihúsa. Innnes er rótgróið fyrirtæki og þekkt fyrir frábæra þjónustu. Við erum fullviss um að okkar viðskiptavinir muni upplifa þessar breytingar á jákvæðan hátt segir Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te & Kaffi.
Við erum stolt að Te & Kaffi hafi valið okkur sem samstarfsaðila. Landsmenn þekkja Te & Kaffi af því frábæra kaffi sem fyrirtækið framleiðir enda markaðsleiðandi á íslenskum matvörumarkaði. Við bindum miklar vonir við vörumerkið og samstarfið segir Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Innnes.
Te & Kaffi er leiðandi framleiðandi á íslenska kaffimarkaðnum og mun í framtíðinni einbeita sér að framleiðslu og vöruþróun á þeim markaði og annast rekstur kaffihúsa sinna.
Innnes ehf. er öflugt og rótgróið fyrirtæki með áralanga reynslu af kaffiþjónustu og er þekkt fyrir fyrsta flokks þjónustu við viðskiptavini sína á öllum sviðum.
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn7 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur




