Markaðurinn
Súkkulaðiveisla með suðrænu ívafi
Nói Síríus byrjar nýja árið á því að gleðja sanna sælkera með því að setja á markað gómsæta nýjung, Síríus Pralín dökkt súkkulaði með ómótstæðilegri kókosfyllingu. Bragðmikið 56% Barón súkkulaðið blandast einstaklega vel við silkimjúka fyllinguna svo úr verður veisla fyrir alla þá sem kunna gott að meta. Og grænkerar gleðjast líka því nýja súkkulaðið er vegan.
„Við eigum von á að súkkulaðiunnendur muni taka þessari vöru fagnandi. Barón súkkulaðið er hið fullkomna súkkulaði fyrir þroskaða bragðlauka og þegar það blandast kókosfyllingunni þá verður til einstök bragðupplifun sem við erum mjög stolt af því að bjóða upp á.
Það skemmir svo ekki fyrir að bragðið minnir á suðlægar slóðir og veitir þannig kærkominn yl í mesta skammdeginu,“
segir Alda Björk Larsen, markaðsstjóri Nóa Síríus, og bætir við að það borgi sig að hafa hraðar hendur því um sé að ræða tímabundna vöru.
Eins og allt Síríus súkkulaði þá er nýja Pralín súkkulaðið vottað af Cocoa Horizons samtökunum. Það þýðir að kakóhráefnin eru ræktuð á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi. Bændur fá aðstoð við að auka fjölbreytileika uppskerunnar og nýta land sitt betur sem stuðlar að jákvæðari umhverfisáhrifum og dregur meðal annars úr eyðingu regnskóga.
-
Frétt7 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Keppni7 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt2 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or19 klukkustundir síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Markaðurinn4 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt3 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum






