Vertu memm

Keppni

Snædís er nýr þjálfari Kokkalandsliðsins

Birting:

þann

Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður

Snædís Xyza Mae Ocampo

Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður hefur verið valin þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem Klúbbur matreiðslumeistara heldur utan um og rekur.  Snædís útskrifaðist sem matreiðslumaður 2018 og hefur alla tíð verið tengd keppnismatreiðslu.  Hún var fyrirliði í landsliðinu sem fór á heimsmeistaramótið 2018 og var einnig fyrirliði í liðinu sem var í þriðja sæti á Ólympíuleikunum í Stuttgart 2020.

Snædís hefur tekið þátt í keppninni um Kokk ársins og vann nýlega keppnina Nordic Challange sem haldin var á Akureyri.

Snædís hóf nám sitt á Apótekinu, þó áhuginn hafi í raun vaknað þegar hún starfaði á Sushi Samba.  Náminu lauk hún svo á Hótel Sögu.  Aðspurð sagðist Snædís þó ekki hafa gengið með kokkinn í maganum og ætlaði í raun aldrei að læra fagið en þegar sú ákvörðun var síðar tekin þá stefndi hún jafnhliða að því að vera ein að þeim bestu!  Með það í huga varð hún fljótlega einn af aðstoðarmönnum landsliðsins og síðar einn af aðstoðarmönnunum á Ólympíuleiknum 2016.  Í dag starfar Snædís sem yfirmatreiðslumaður á ION Hótel.

Þegar Snædís var spurð um markmið hennar þá sagðist hún vilja vera fyrirmynd fyrir alla sem vinna með henni og vonist til að þeim finnist þau geta sótt til hennar ráð bæði nú og í framtíðinni.

„Ein af mínum stoltustu stundum var þegar ég gekk upp á svið til að fá afhent brons verðlaun á Ólympíuleikunum 2020 komin fjóra mánuði á leið. Ég á þá ósk að landsliðsfólkið okkar eigi eftir að upplifa þessa sömu tilfinningu og við ætlum okkar á pall 2024 og auðvitað stefnum við á gull,“

sagði Snædís að lokum.

„Árangur á stórmótum kemur ekki af sjálfu sér og kostar miklar fórnir frá landsliðsmönnum, fjölskyldu þeirra og öllum þeim sem að liðinu koma.  Það að fylgjast með Snædísi vaxa frá aðstoðarmanni landsliðsins upp í þátttakanda liðsins og nú þjálfara sýnir okkur öllum hvað hægt er að gera með mikilli vinnu, áræðni og einbeitingu.

Við erum stolt af því að hafa Snædísi sem landsliðsþjálfara Kokkalandsliðsins,“

segir Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara og bætir við:

„Við megum líka ekki gleyma bakhjörlum og styrktaraðilum liðsins en án þeirra væri ekki hægt að halda úti svona öflugu liði. Undanfarin ár hefur landsliðið æft í húsnæði fagfélagana á Stórhöfða og á Matvís miklar þakkir fyrir að veita þá aðstöðu.“

Mynd: aðsend

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið