Vertu memm

Keppni

Skráning er hafin fyrir næsta Arctic Young Chef

Birting:

þann

Skráning er hafin fyrir næsta Arctic Young Chef

Ungkokkar frá Norðurslóðum fá tækifæri til að sýna hæfileika sína, vinna með staðbundið hráefni og keppa um sæti í úrslitum Arctic Young Chef á Íslandi árið 2027.

Skráning í AYC opnaði 15. maí s.l. á AYC.fo, þar sem ungir og efnilegir kokkar 24 ára og yngri geta sótt um þátttöku í einu áhugaverðasta matreiðslu verkefni Norðurslóða.

Arctic Young Chef, oftast kallað AYC, er matreiðslukeppni fyrir unga kokka frá Norðurslóðum. Keppnin snýst ekki aðeins um að elda fallega rétti undir tímapressu, heldur um að segja sögu svæðisins í gegnum hráefni, hefðir, tækni og skapandi hugsun. Markmið AYC er að efla unga kokka, styrkja tengsl milli Íslands, Færeyja, Noregs og annarra norðurslóða, og vekja athygli á matarmenningu, staðbundnu hráefni, sjálfbærni og vannýttum hráefnum.

Í keppninni mætast hefð og nýsköpun. Keppendur fá tækifæri til að vinna með hráefni sem tengjast landi, sjó, árstíðum og menningu norðurslóða. Þar skiptir máli að kunna handverkið, en líka að geta hugsað sjálfstætt: Hvernig má nýta hráefni betur? Hvernig má segja sögu landsins með mat á disknum? Og hvernig getur næsta kynslóð matreiðslumanna tekið virkan þátt í að móta framtíð matar á Norðurslóðum?

AYC leggur sérstaka áherslu á norðurslóðasamstarf, unga kokka, staðbundið hráefni, matarhefðir, sjálfbærni og skapandi hugsun í eldhúsinu. Keppnin er jafnframt vettvangur þar sem ungt fagfólk getur kynnst, lært hvert af öðru og byggt upp tengsl sem geta haft áhrif langt út fyrir sjálfan keppnisdaginn.

Forkeppnir AYC fara fram í þremur löndum árið 2026:

Færeyjar: 22. ágúst í Klaksvík
Ísland: 5. september
Noregur: 28. október

Sigurvegari hverrar forkeppni fær þátttökurétt í úrslitakeppni Arctic Young Chef, sem fer fram á Íslandi árið 2027. Þar mætast sigurvegarar landanna og keppa um titilinn Arctic Young Chef. Vinningsfé verður í boði, auk þess sem keppnin veitir þátttakendum verðmæta reynslu, sýnileika og tækifæri til að byggja upp tengsl innan matreiðslu heimsins á Norðurslóðum.

Umsóknarfrestur eru mismunandi eftir löndum:

Færeyjar: 1. ágúst
Ísland: 15. ágúst
Noregur: 15. september

AYC á rætur sínar að rekja til NORA, sem stofnaði verkefnið upphaflega sem hluta af víðara starfi við að efla samstarf, nýsköpun og tengsl milli svæða á Norðurslóðum. NORA hefur áfram mikilvægt hlutverk sem bakhjarl verkefnisins og hefur stutt við þróun þess frá hugmynd yfir í lifandi vettvang fyrir unga kokka, skóla, fagfólk og matarmenningu svæðisins.

Fyrir unga kokka er AYC tækifæri til að stíga fram, prófa sig áfram, kynnast öðrum í faginu og sýna hvernig matreiðsla á Norðurslóðum getur verið í senn rótgróin, framsækin og persónuleg. Keppnin kallar eftir fólki sem hefur áhuga á hráefni, sögu, handverki og framtíð matar — og sem vill taka þátt í að þróa matarmenningu norðurslóða áfram.

Umsóknir eru á www.AYC.fo.

Fréttayfirlit um Arctic Young Chef hér á veitingageirinn.is má lesa með því að smella hér.

Myndir: úr einkasafni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið