Nemendur & nemakeppni
Sex matreiðslunemar úr VMA kynntu sér spænska matargerð í Móstoles
Sex nemendur í 2. bekk í matreiðslunámi við Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA) voru í síðustu viku í námsferð í verknámsskóla í Móstoles í útjaðri Madríd á Spáni. Ferðin var styrkt af Erasmus+ styrkjaáætlun ESB og einnig styrktu hana Klúbbur matreiðslumeistara á Norðurlandi og Kjarnafæði-Norðlenska. Með í för voru kennararnir Ari Hallgrímsson og Harpa Friðriksdóttir, Unnur Ása Atladóttir sviðsstjóri iðn- og starfsnáms í VMA og matreiðslumeistarinn Einar Gauti Helgason á Vitanum mathúsi á Akureyri.
Fyrir tæpu ári komu tveir gestakennarar frá þessum skóla í Móstoles í heimsókn í VMA og kynntu sér skólastarfiið og eitt og annað í íslenskri matarhefð. Þannig komust á góð tengsl við þennan skóla, sem ber heitið CIFP Simone Ortega Escuela de Hostelería y Turismo. Í skólanum er kennd matreiðsla og framreiðsla og einnig er þar ferðamálabraut.
Framangreind sendinefnd VMA flaug í beinu flugi frá Akureyri til London laugardaginn 28. febrúar sl. og kom heim aftur til Akureyrar með Eeasy Jet frá London sl. laugardag, 7. mars. Tvær nætur var gist í London, bæði á leiðinni til Madríd og á heimleiðinni.
Hópurinn flaug sem sagt frá London til Madríd 1. mars og daginn eftir lá leiðin í skólann í Móstoles þar sem gafst tækifæri til þess að kynnast einu og öðru í spænskri matargerð og brugðu VMA-nemar sér að sjálfsögðu í kokkagallana og tóku til hendinni. Skólinn var heimsóttur frá mánudegi til fimmtudags. Þar er m.a. starfrækt bakarí og þrjá daga í viku er matur seldur á kostnaðarverði. Það nýta sér m.a. eldri borgarar sem búa í nágrenni skólans.
Svo skemmtilega vildi til að á meðan á dvölinni stóð átti stórliðið Real Madríd heimaleik gegn Getafe á þeim fræga velli Santiago Bernabéu, sem tekur um áttatíu þúsund manns í sæti. Nokkrir knattspyrnuþyrstir úr hópnum brugðu sér á völlinn og urðu vitni að því að Real tapaði þessum heimaleik 0-1, sem fór að vonum miður vel í blóðþyrsta áhangendur Real. Einnig gafst hópnum tækifæri til þess að fara á einskonar leikhústónleika þar sem bresku hljómsveitinni Queen voru gerð skil í máli og tónum.
Ari Hallgrímsson brautarstjóri matvælabrautar VMA segir að almenn ánægja hafi verið með þessa ferð. Vel hafi verið tekið á móti hópnum og viðgjörningur allur hinn besti. Hann segir ánægjulegt að koma á samskiptum milli landa með þessum hætti og áfram verði VMA í góðu sambandi við þennan spænska skóla því í næsta mánuði sé von á tveimur kennurum af ferðamálabraut hans til Akureyrar.
Hægt er að skoða fleiri myndir frá ferðalaginu með því að smella hér.
Myndir: vma.is
-
Frétt4 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni4 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni6 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni4 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or5 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn5 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanLandslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina






