Uppskriftir
Serranóvafin hörpuskel með brenndu salvíusmjöri – Dúndur forréttur
Hörpuskel er kjörið að bera fram sem forrétt til að tendra bragðlaukana. Hana má ekki elda lengi, annars er hætta á að hún verði gúmmíkennd og jafnvel seig undir tönn.
Serranóskinka kemur frá Spáni og er einstaklega bragðgóð. Auðvitað væri hægt að nota parmaskinku eða jafnvel beikon. Ef beikon verður fyrir valinu er nauðsynlegt að steikja það í gegn. Beikonið ver hörpuskelina fyrir hitanum og leggur til ljúffengt bragð.
Steikt salvía er sælgæti og passar hreint út sagt ljómandi vel með þessum rétti. En það verður auðvitað að nota ferska salvíu. Þurrkuð salvía mun ekki gera neitt fyrir réttinn – nema gera hann verri! Og það er engin ástæða til að skemma dásamlega góðan mat!
Fyrir fjóra sem forréttur
12 hörpudiskar
6-12 sneiðar serranóskinka (háð stærð)
safi úr ½ sítrónu
salt og pipar
75 g smjör
12-15 salvíulauf
Vefjið hverja hörpuskel með hálfri til einni sneið af serranóskinku, penslið með olíu, vætið með ferskum sítrónusafa, saltið og piprið.
Rennið tveimur spjótum í gegnum hörpuskelina (þá er maður snarari við að snúa þeim og það heldur skinkunni á sínum stað – jafnframt er mikilvægt að láta spjótin liggja í vatni í um klukkustund til að síður kvikni í þeim).
Kyndið grillið og þegar það er blússheitt er hörpuskelin elduð í eina til eina og hálfa mínútu á hvorri hlið. Setjið til hliðar.
Skellið pönnu á grillið og bræðið smjörið. Þegar það hefur hljóðnað er salvían sett á pönnuna og steikt þar til hún verður stökk – hafið auga með pönnunni þar sem þetta tekur einvörðungu nokkrar sekúndur.
Leggið svo hörpuskeljarspjótin á disk, raðið salvíu ofan á og hellið brúnuðu salvíusmjöri yfir.
Njótið!
Myndir og höfundur: Ragnar Freyr Ingvarsson, einnig þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu.
-
Keppni6 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn2 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Markaðurinn4 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn3 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni




