Frétt
Selshreifar, blóðpönnukökur og súr hænuegg, gjörið svo vel
Spyrja má. Hvað eiga eftirtaldir sælkeraréttir sameiginlegt: Selshreifar, hrefnukjötsbollur, grásleppuhrognabollur, grafið sauðakjöt, súr hænuegg, hettumávsegg, blóðpönnukökur; og síðan í eftirrétt, ábrystir úr kindum og kúm, að eigin vali.
Svarið við spurningunni er: Þetta er sýnishorn úr hinu stórglæsilega fjöruhlaðborði sem húsfreyjurnar á Vatnsnesi í Húnaþingi, efna til árlega um Jónsmessuna í Hamarsbúð, skammt frá hinni frægu Hamarsrétt á Vatnsnesi. Þangað lögðum við hjónin leið okkar um helgina og nutum góðgerðanna og krásanna.
Þetta er í rauninni algjörlega einstæð máltíð og matseðillinn fjölbreyttur. Ekki er ofmælt sem segir í kynningu: „Fjölbreytni, glæsileiki og gæði matfanga eru löngu þekkt vítt um land. Ekkert mun skorta hvað matinn varðar fremur en endranær.“
Þetta reyndi ég á sjálfum mér og vandinn fólst eingöngu í því að sjá til þess að sem flest af þessu góðgæti kæmist fyrir maganum. Það reyndi ég að tryggja með því að vera vandfýsinn; velja fyrst og fremst mat sem ekki bæri fyrir augu og vit manns að öðru jöfnu. En jafnvel sú þrönga skilgreining dugði ekki til þess að tryggja að ég næði að innbyrða það sem hugurinn girntist. Þá er huggun gegn þeim harmi að vita, að slík veisla verður í boði að ári og má þá bæta úr og eta það sem út af stóð, ef aðstæður leyfa !
Góður félagi minn og vinur, Karl Sigurgeirsson á Hvammstanga tók meðfylgjandi myndir. Annars vegar af mér með hraukaðan disk af krásum ( úr fyrstu ferð að veisluborðinu) og hins vegar þar sem gestir gæða sér af hinu ríkulega hlaðborði.
Það er ástæða til þess að óska húsfreyjunum á Vatnsnesi og þeim öðrum sem að þessu skemmtilega framtaki standa, til hamingju. Þetta er til hreinnar fyrirmyndar. Aðsókn þeirra hundruða, sem ýmsir komu um langan veg, sannar réttmæti þessa forvitnilega og frumlega fjöruhlaðborðs. Þarna er á ferðinni næsta einstakt verk sem verðskuldar aðsókn og athygli.
© Einar Kristinn Guðfinnsson, Sjávarútvegsráðherra.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni5 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau




