Uppskriftir
Rjúpubringur með granatepla- og fíkjuvinaigrette
Hráefni
1 stk granatepli
1 stk sweetieávöxtur
4 stk þurrkaðar fíkjur
50 ml valhnetuolía
50 ml olivuolía
20 g valhnetur
½ búnt sítrónumelissa
2 msk ljóst balsamic edik
2 stk kartöflur
20 g smjör
Maldonsalt og svartur pipar
4 stk rjúpur (8 bringur)
2 msk olía til steikingar
Aðferð
Skerið granateplið í fjóra hluta og takið fræin úr því. Maukið 1/3 af fræjunum í matvinnsluvél og setjið í skál ásamt heilu fræjunum. Skrælið sweetie ávöxtinn, skerið laufin úr kjötinu, kreystið safann úr afgangnum og bætið út í skálina. Skerið þurrkuðu fíkjurnar í þunnar sneiðar, saxið sítrónumelissuna fínt og blandið út í skálina ásamt valhnetuolíunni, olivuolíunni, söxuðum valhnetum og ljósa balsamic edikinu. Kryddið með salti og pipar.
Skrælið kartöflurnar og skerið þær í þunnar sneiðar. Bræðið smjörið í potti og veltið kartöflusneiðunum upp úr því. Raðið kartöflunum í hring (8 sneiðar í einum hring), setjið á smjörpappír og aftur smjörpappír yfir. Bakið inni í ofni við 140°c í 2 klst eða þar til stökkt.
Úrbeinið rjúpurnar og kryddið bringurnar með salti og pipar. Hitið pönnu og steikið bringurnar í 3 mínútur á hvorri hlið upp úr olíu.
*Gott er að gera vinaigrettið deginum áður til að fá meira bragð í hana.
Höfundur: Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran
Fyrir 4
-
Markaðurinn7 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn7 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni3 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu



