Markaðurinn
Rekstrarvörur og Bocuse d‘Or Akademía Íslands gera með sér samstarfssamning

Við borðið sitja Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Bocuse d‘Or keppandi og matreiðslumeistari, Ólafur Helgi Kristjánsson, matreiðslumeistari og eigandi Brasserie Kársnes, Aðalbjörn Þorgeir Valsson, Sölu og þjónustustjóri Rekstrarvara og Sigurjón Emil Ingólfsson, HoReCa ráðgjafi RV.
RV vinnur með fremstu matreiðslumönnum landsins. Rekstrarvörur eru stolt að kynna áframhaldandi stuðning við Bocuse d‘Or Akademíu Íslands. RV styrkir Sindra Guðbrand Sigurðsson og teymið sem keppir fyrir hönd Íslands í Evrópudeild Bocuse d‘Or sem fer fram 19.-20.mars 2024 í Þrándheimi, Noregi.
Rekstrarvörur leggja sérstaka áherslu að veita heildarlausnir fyrir eldhús af öllum stærðum og gerðum. Ráðgjafar okkar eru ávallt reiðubúnir til að aðstoða, útbúa þrifaáætlanir og finna réttu lausnina af hágæða hreinlætis- og rekstrarvörum.
Íslenska teymið er öflugt með Sindra í forsvari en hann vann titilinn Kokkur ársins 2023, er liðsstjóri íslenska kokkalandsliðsins og stofnaði nýlega veisluþjónustuna Flóru með Sigurjóni Braga Geirssyni.
Sigurjón keppti fyrir hönd Íslands í Bocuse d‘Or árið 2023 og er þjálfari Sindra í ár. Hinrik Örn Halldórsson er aðstoðarmaður Sindra í keppninni og óskum við þeim allra besta gengis.
Það er mikill heiður að vera bakhjarl þeirra bestu á Íslandi með hreinlætis- og rekstrarvörum frá RV. Við verðum þeim til halds og trausts og hlakkar til að fylgjast með Sindra og teyminu í undirbúningnum og sjálfri keppninni í mars.
Áfram Ísland!
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLitlu hlutirnir skipta mestu máli hjá Agga Sverris
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel8 klukkustundir síðanNýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanHelliskaffi opnað í Hellisgerði með metnaðarfullar hugmyndir
-
Markaðurinn2 dagar síðanLandsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
-
Markaðurinn7 dagar síðanFerskt íslenskt kínakál komið á markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMyndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu
-
Markaðurinn2 dagar síðanInnnes kynnir nýtt jógúrt frá Frischli
-
Markaðurinn2 dagar síðanLangar þig að læra að tína villta sveppi?


