Frétt
Opnað fyrir tilnefningar í norrænu matvælaverðlaunin Emblu 2021
Kallað er eftir tilnefningum fyrir Norrænu matvælaverðlaunin Emblu 2021 sem haldin verða í þriðja sinn í Osló á næsta ári. Vegna heimsfaraldursins þurfti að fresta verðlaununum i vor en nú taka Norðmenn við keflinu í mars en verðlaunin eru styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.
Í mars verður norrænum mat fagnað með verðlaunaafhendingu í Osló. Nú hefur verið opnað fyrir tilnefningar í sjö flokkum. Allir geta tilnefnt sjálfa sig, samstarfsmann eða þá sem eru til fyrirmyndar í matvælageiranum.
Á emblafoodaward.com getur þú nú tilnefnt aðila í eftirfarandi flokkum:
- Norrænn matvælaframleiðandi
- Frumkvöðull í norrænni matargerð
- Handverksmaður í norrænni matargerð
- Boðberi norrænar matargerðar
- Norrænn matur fyrir marga
- Áfangastaður í norrænni matargerð
- Norrænn matur fyrir börn og ungmenni
Mismunandi viðmið verða notuð við mat á þeim sem tilnefndir verða, eins og sjálfbærni, frumleiki, heiðarleiki og “norrænt”. Opið er fyrir tilnefningar á heimasíðunni í október. Dómnefnd í hverju landi fyrir sig mun velja keppendur í hverjum flokki frá sínu eigin landi. Þeir sem verða fyrir valinu verða kynntir um miðjan desember.
Norrænu matvælaverðlaunin Embla voru stofnuð af norrænu Bændasamtökunum og eru styrkt af Norrænu ráðherranefndinni, að því er fram kemur á bondi.is. Verðlaunin eru hluti af Nýju norrænu matvælaáætluninni. Að þessu sinni eru verðlaunin haldin í þriðja sinn og fara fram í Osló þann 11. mars 2022.
-
Frétt7 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Keppni7 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt2 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or17 klukkustundir síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Markaðurinn4 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt3 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum






