Keppni
Ólympíuleikar matreiðslunema – Halldór Hafliðason keppir fyrir hönd Íslands
Ólympíuleikar matreiðslunema verða haldnir rafrænt í ár líkt og í fyrra, en keppnin hefur venjulega verið haldin á Kolkata á Indlandi áður en kórónuveiran kom til sögunar.
Hótel-, og matvælaskólanum hefur tekið þátt í mótinu undanfarin ár og er einn matreiðslunemi sem keppir fyrir hvert land.
Í fyrra eins og áður segir fór keppnin fram rafrænt en þar keppti Róbert Demirev og honum til aðstoðar var Dagur Hrafn Rúnarsson og lenti Ísland í 13. sæti.
Keppnin byrjar á morgun mánudaginn 31. janúar þar sem helmingur keppenda keppa um sæti í úrslitum en síðari helmingurinn keppir á þriðjudaginn n.k., en Ísland keppir á mánudeginum. 50 lönd taka þátt í keppninni.
Það eru tuttugu keppendur sem komast í úrslit og úrslitakeppnin virkar þannig að tíu keppendur keppa um “Grand trophy“ sem er 1.-10. sætið og “Plate trophy” sem er 11.-20. sætið. Þannig það er aðeins einn séns til þess að komast í keppnina um fyrsta sætið.
Verðlaunin eru vegleg og fær sigurvegarinn 5.000 dollara.
Nemendurnir sem taka þátt í ár eru: #1 Halldór Hafliðason, #2 Kristvin Þór Gautason og #3 Dagur Gnýsson. Það er samt einn sem tekur þátt sem keppandi og er #2 aðstoðamaður. Ef það kemur upp sú staða að #1 geti ekki keppt vegna veikinda (Covid) þá tekur #2 við keflinu og #3 aðstoðar og svo framvegis.
Þjálfari er Ægir Friðriksson matreiðslumeistari og kennari í Hótel-, og matvælaskólanum.
„Þetta er skemmtilegt tækifæri til að brjóta upp skammdegið hjá okkur og gaf þessi keppni þeim nemendum sem tók þátt í fyrra mikla upplyftingu bæði andlega og faglega.“
Sagði Ægir í samtali við veitingageirinn.is
Veitingageirinn.is mun fylgjast vel með og færa ykkur fréttir frá keppninni.
Mynd af Hótel-, og matvælaskólanum: Smári / Veitingageirinn.is
-
Markaðurinn3 dagar síðanJóhannes Kristjánsson hefur hafið störf hjá Bako Verslunartækni (BVT)
-
Markaðurinn4 dagar síðanViltu reka kaffihús í hjarta Miðborgarinnar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanGóð stemning og öflugt fagfólk á fundi Klúbbs Matreiðslumeistara hjá Bako
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanÞessir barir og barþjónar eru tilnefndir til BCA á Íslandi
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanAtvinnurekendur bregðast við: Styttri opnun og færri vaktir á krám
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanGamli Baukur heldur áfram með nýja eigendur og skýra sýn
-
Keppni2 dagar síðanTíu barþjónar tryggja sér sæti í úrslitum Bláa Safírsins
-
Frétt4 dagar síðanÞegar þorrablót ganga í garð. Hvað þarf að hafa í huga varðandi matvælaöryggi?








