Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Obo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
Nýr veitingastaður, Obo diner, mun opna á næstunni að Fagradalsbraut 13 á Egilsstöðum. Staðurinn verður rekinn undir slagorðinu American Diner × Asian Fusion og leggur áherslu á að sameina bandaríska matsölustaðamenningu og asísk áhrif í matargerð sinni.
Á kynningarsíðu staðarins segir að markmiðið sé að bjóða upp á góðan mat, hlýlegar móttökur og skapa stað sem gestir vilji heimsækja aftur og aftur.
Húsnæðið að Fagradalsbraut 13 er mörgum vel kunnugt. Þar opnaði Skálinn Diner í maí 2018 en áður hafði Shell-skálinn verið starfræktur á sama stað. Í gegnum árin hefur staðurinn verið vinsæll viðkomustaður ferðalanga og heimamanna.
Með opnun Obo diner fær húsnæðið nýtt nafn, nýja ásýnd og breytta áherslu í matseðli, þar sem bandarískir réttir og asísk matargerð verða í forgrunni. Opnunardagur hefur ekki enn verið kynntur.
Myndir: Facebook / OBO diner
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði






