Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýtt hótel, baðlón og heilsulind við Langasand

Við undirritun í dag.
Hrönn Ríkharðsdóttir formaður Íþróttabandalags Akraness, Aðalsteinn Jóhannsson fyrir hönd Ísoldar fasteignafélags, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Eggert Herbertsson formaður knattspyrnufélags ÍA.
Akraneskaupstaður, Ísold fasteignafélag, Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Knattspyrnufélag Akraness undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um uppbyggingu við Langasand.
Í henni felst að byggt verði hótel, baðlón og heilsulind á svæðinu. Jafnframt er lýst yfir samstarfi aðila um stefnumörkun í ferðaþjónustu á Akranesi. Þá er einnig áformuð uppbygging á svæði ÍA þar sem m.a. verða nýir knattspyrnuvellir fyrir félagið og stórbætt aðstaða fyrir iðkendur og íbúa.
Í tilkynningu frá Akraneskaupstað segir að svæðið er einstaklega skemmtilegt og býður nálægðin við Langasand, Guðlaugu og íþróttasvæði ÍA upp á spennandi möguleika og fáir staðir sem bjóða upp á ljósa sandfjöru sem snýr á móti suðri.
Fyrst hefst vinna við að greina tækifæri í ferðaþjónustu og að móta stefnu á því sviði og er áætlað að þeim fasa ljúki innan fjögurra mánaða en þá hefjist vinna við deiliskipulag og aðra slíka þætti. Mikil áhersla verður lögð á samráð og samtal við bæjarbúa og hagsmunaaðila.
,,Hér er verið að fara í gang með mjög metnaðarfullar hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu sem okkur hefur skort á Akranesi, en auk þess getum við bætt enn frekar aðstöðu fyrir íþróttastarfið hjá okkur.
Þetta eru mikilvæg skref fyrir áframhaldandi vöxt Akraness og tilað auka enn við þjónustu og upplifun á þessu fallega svæði sem gegnir lykilhlutverki í lífi Akurnesinga.“
Sagði Sævar Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi.
„Við hjá Ísold hlökkum til að byggja upp hótel og baðlón með fjölbreyttri þjónustu hér á þessu frábæra svæði og taka þannig þátt í að efla og byggja upp á Akranesi og um leið að styðja við ÍA. Við getum varla beðið eftir því að hefjast handa við fyrstu verkefnin,“
sagði Aðalsteinn Jóhannsson hjá Ísold fasteignum.
Nánari upplýsingar hér um uppbygginguna við Langasand.
Mynd: akranes.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins




