Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýir rekstraraðilar á Harbour House á Siglufirði
Nú á dögunum tóku þeir Gestur Þór Guðmundsson og Sigmar Bech við rekstrinum á veitingahúsinu Harbour House á Siglufirði.
Harbour House er staðsett á hafnarsvæðinu á Siglufirði og býður upp á ferskt sjávarfang eins og fiskisúpu, bleikju, þorsk og annað ferskmeti sem fæst á svæðinu.
Einnig verður boðið upp á smurbrauð og þá nýung að hafa brunch um hádegi á laugar- og sunnudögum. Það er greinilegt að gestir eru ánægðir með Harbour House, en staðurinn hefur fengið ágætis einkunn á TripAdvisor.
Gestur Þór Guðmundsson er menntaður leiðsögumaður og hefur starfað sem slíkur undanfarin ár. Sigmar Bech er framreiðslumaður að mennt og starfaði síðast á Sigló Hótelinu. Sigmar og Gestur eiga tvö fyrirtæki í ferða- og veitingaþjónustu, annað er Wild Tracks sem sér um útleigu á fjallahjólum ásamt leiðsögumennsku.
Til liðs við Sigmar og Gest Þór er Sigríður Vilhjálmsdóttir, menntaður matsveinn og hefur starfað sem kokkur undanfarin 30 ár, mun hún ráða ríkjum í eldhúsinu.
Harbour House verður hugsað sem miðstöð á Siglufirði fyrir upplýsinga- afþreyingarþjónustu fyrir ferðamenn með mat og afþreyingu, þar sem hægt verður að njóta ljúffengra veitinga og leigja fjallahjól, sjóbretti eða fá leiðsögn um umhverfið í kring.
Að auki munu þeir Gestur og Sigmar annast rekstur og umsjón tjaldsvæðanna sumarið 2018. Tjaldsvæðin á Siglufirði eru tvö, annað staðsett í miðbænum við ráðhústorgið og smábátabryggjuna og hitt sunnan við snjóflóðavarnargarðinn Stóra bola. Það var Trölli.is sem greindi fyrst frá.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt6 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Markaðurinn5 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Markaðurinn5 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun20 klukkustundir síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu






