Viðtöl, örfréttir & frumraun
Norskir dagar á Fjalakettinum
Það eru norskir dagar á veitingastaðnum Fjalakettinum dagana 13. til 17. maí. Á Fjalakettinum verður blásið til langrar og skemmtilegrar helgar með norskum mat, menningu og tónlist.
Norski matreiðslumaðurinn, Lars Lervik, frá norður Þrændalögum, kemur í heimsókn á Fjalaköttinn og mun hann matreiða og kynna norska matargerð.
Á norsku dögunum verðum hágæða a la carte matseðill á Fjalakettinum og aðaláherslan á norska matargerð. Þjóðhátíðardagur norðmanna er 17. maí, sem ber upp á mánudag, og ætlum við að halda hann hátíðlegan með sérstökum hátíðarmatseðli. Lars hefur sett saman spennandi fjögurra rétta matseðil sem verður í gildi frá fimmtudegi til sunnudags og á mánudeginum verður sex rétta matseðill.
Matseðlarnir á norsku dögunum
Fjögurra rétta matseðill
-
Áquavítis marineraða hreindýr með papriku aioli
-
Silunga tartar með reyktum silung og soya- engifers kjarna
-
Hreindýr með sultu úr lauk og þurruðum ávöxtum, sellerírótar mauk, þúsundlaga kartöflur og rosmarinsósa
-
Súkkulaði tart dúó með jarðarberja- og greni hnúpa ís, mango og múltuberja sósu
Verð fyrir 4 rétta 6.900 krónur
Þjóðhátíðarmatseðill 17. maí
Sex rétta matseðill
-
Áquavítis marineraða hreindýr með papriku aioli
-
Silunga tartar með reyktum silung og soya- engifers kjarna
-
Lamb og kál (Þjóðar réttur norðmanna) með trönuberja ís- krapi
-
Sinneps bökuð stórlúða með sætkartöflu mauki, jarðsveppa(truffle) risotto og sítrus beurre blanch
-
Hreindýr með sultu úr lauk og þurruðum ávöxtum, sellerírótar mauk, þúsundlaga kartöflur og rosmarinsósa
-
Súkkulaði tart dúó með jarðarberja- og greni hnúpa ís, mango og múltuberja sósu
Verð fyrir 6 rétta 7.900 krónur
Rækjur, léttvín og lifandi norsk tónlist
Uppsalir – bar og kaffihús, verður með rækjukokteil, hvítvín og kampavín á tilboðsverði á norsku dögunum. Norskur tónlistarmaður spilar öll kvöld frá fimmtudegi til mánudags frá klukkan 22:00 23:00. Á þjóðhátíðardeginum mun fjörið halda áfram fram eftir kvöldi.
Pantanir á netfangið [email protected] og í síma 514 6000
Frekari upplýsingar um norsku dagana hér
Mynd: Axel Þorsteinsson
-
Markaðurinn4 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn5 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Markaðurinn4 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt2 dagar síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni3 dagar síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí
-
Markaðurinn3 dagar síðanYfirkokkur/Verkstjóri óskast




