Freisting
Nóbelsverðlaunahafi segir að tvöfalda verði matvælaframleiðslu
Nóbelsverðlaunahafinn Norman Borlaug segir að tvöfalda verði matvælaframleiðslu í heiminum á næstu fimmtíu árum svo hægt verði að mæta mikilli fólksfjölgun í Asíu. Þá segir Borlaug, að þótt hungur sé enn víða í Asíu og Suður-Ameríku, þá sé mestu áskorunina að finna í Afríku.
Norman Borlaug, sem er bandarískur landbúnaðarfræðingur, hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1970 fyrir framlag sitt við aukningu landbúnaðarframleiðslu, en hann þróaði sjúkdómaþolið hveitafbrigði sem gjörbylti hveitiframleiðslu í Mexíkó, Pakistan og á Indlandi.
Borlaug sagði á ráðstefnu hjá Asíska þróunarbankanum, að ráðstafana sé þörf vegna takmarkaðra vatnsbirgða og nýrra uppskerusjúkdóma í heiminum, benti sérstaklega á stilk-ryð, sjúkdóm, sem herjað hefur á hveiti í A-Afríku, og sagði að aðeins sé spurning um tíma þar til sjúkdómurinn berst til Asíu.
Eftirspurn eftir mat, dýrafóðri og trefjum mun að líkindum tvöfaldast fyrir miðja þessa öld eftir því sem þjóðir stækka og efnast meðan að ræktanlegt land mun minnka um fimmtung. Byltingar er einnig þörf á Indlandi og nauðsynlegt að þróa þurrkþolin afbrigði nytjaplantna. Lagði Borlaug áherslu á líftækni og önnur ný vísinda-tæki sem lausnir við vandanum.
Greint frá í Morgunblaðinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins



