Viðtöl, örfréttir & frumraun
Nemendur í Hótel- og matvælaskólanum fóru á kostum í Granda Mathöll
Nemendur í Hótel- og matvælaskólanum komu sáu og sigruðu öll sem eitt í nýafstöðnum viðburði sem var í hádeginu 9. apríl s.l. í Granda Mathöll.
Sjá einnig: Hnossgæti úr vannýttum hráefnum
Á heimasíðu Matarauðs Íslands kemur fram að viðburðurinn var samvinnuverkefni þeirra og Hótel- og matvælaskólans til heiðurs vannýttra hráefna sem ýmist fengu nýtt hlutverk eða nýjan búning.
„Við sjáum fram á nýja kynslóð kokka sem eru hvattir til að láta sig sjálfbærni og umhverfisvernd varða.
Það er sorglegt til þess að hugsa að um þriðjungi allra matvæla er sóað í gegnum virðiskeðju matvæla og hráefni fargað sem ella mætti nýta í ótrúlega bragðgóða rétti í meðförum fagmanna og hugmyndaríkra leikmanna. Það væri virkilega spennandi ef einhver veitingastaður myndi sérhæfa sig í matreiðslu á vannýttum hráefnum, þar sem matseðillinn væri árstíðabundinn og háður því hráefni sem gnægð væri af hverju sinni. Vissulega áskorun en myndi eflaust falla neytendum samtímans vel í geð.“
Segir í frétt á mataraudur.is.
Dómnefnd valdi þrjár bestu útfærslurnar, en í dómnefnd voru:
- Eliza Reid, forsetafrú
- Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumeistari
- Ragnar Wessmann, matreiðslumeistari
Þau brögðuðu og dæmdu alls 10 rétti. Við matið þurftu þau að taka tillit til matarupplifunar, hversu einkennandi íslenskt hráefnið væri, bragð og áferð, nýsköpunarinnar við réttinn og hversu vannýtt hráefnið í raun væri.

3. sæti: Húsdýragarðurinn: Brasseraður nautaháls og mergur borin fram á laufabrauði með rauðvínssósu.
„Mikið var gaman að vera dómari í dag í nýrri herferð, „Þjóðlegir réttir á okkar veg – gerum vannýtt hráefni að nýju hnossgæti.“ Matarauður Íslands og Hótel- og matvælaskólinn standa að herferðinni. Hún snýst í stuttu máli um það nemendur skólans blésu til sóknar í baráttunni við matarsóun.
Þeir biðluðu til almennings um hugmyndir að réttum úr íslenskum hráefnum, sem eru vannýtt í matargerð, og útfærðu þannig að úr varð hnossgæti sem sómir sér vel á diskum landsmanna. Allir réttirnir voru frumlegir – og afar gómsætir!“
Skrifar Eliza Reid á facebook síðu sinni.
Aðrir réttir sem boðið var upp á:
- Brasseruð sítrónutónuð grísakinn á mjúkri hveiti tortilla með stökkri grísapuru.
- Lambarif með amerísku hrásalati.
- Lifrafrauð úr rauðmagalifur á stökku kexi.
- Reykt bleikja með íslenskum ostrusveppum og sítrónu tónuðu kartöflukremi.
- Uxahala taco með suðrænu mayonnaise og sýrðum rauðlauk.
- Rófu bollakaka með smjörkremi og gúrkukrapa.
- Hunangs Torrone með ristuðum möndlum og pistasíum.
- Grafið Lambahjarta með sýrðum ávöxtum.
- Hvannarkrisp, kræklingakrisp, mysukrisp, hreindýramosi, fjallagrös.
Þarna mátti bragða rétti og snarl sem ekki fóru fyrir dómnefnd eins og lambabris, mysukrisp sem var eftirlæti gesta og hreindýramosi. Lambaslög með salati, agúrkusósa, sviða “pura“ og djúpsteikt grísaeyru voru ennfremur á boðstólum til að smakka.
Gestir og gangandi fengu að kjósa sína uppáhaldsútfærslu.
Þar var Brasseraður nautaháls og mergur á laufabrauði í uppáhaldi, síðan kom lambarif með hrásalati og í þriðja sæti rauðmagalifrarfrauð á stökku kexi.
Myndir: facebook / Eliza Reid og Matarauður Íslands
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel19 klukkustundir síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Frétt6 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn3 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn6 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTímamót hjá Mat og drykk eftir áratug á Grandagarði










