Frétt
Hnossgæti úr vannýttum hráefnum
Matarauður Íslands og Hótel- og matvælaskólinn blása til sóknar gegn matarsóun og biðla til almennings um að senda hugmyndir að íslenskum hráefnum sem eru vannýtt í matargerð. Þetta er ný nálgun á kynningarherferðinni þjóðlegir réttir á okkar veg sem við efndum til í fyrra.
Í tilkynningu kemur fram að nemendur við Hótel og matvælaskólann útfæra hugmyndirnar þannig að úr verður óviðjafnanlegt hnossgæti. Í hádeginu 9. apríl í Mathöll Granda fær almenningur að smakka og velja bestu útfærsluna að þeirra mati. Í kjölfarið verður netkosning á vefsíðu Matarauðs Íslands þar sem uppskriftir, aðferðir og myndir af útfærslu nemanna verða birtar.
Þetta er sameiginleg vegferð okkar allra til að efla þekkingu og notkun á vannýttum hráefnum sem oft eru ódýr, auka fjölbreytileika í matargerð, efla ímynd matarmenningar og síðast en ekki síst vinna gegn matarsóun.
Ef skapast eftirspurn eftir vannýttu hráefni gefst tækifæri fyrir frumframleiðendur að bjóða upp á slíkt t.d. í gegnum REKO-söluhringi á facebook. Að sama skapi geta hugmyndirnar og útfærsla orðið matarfrumkvöðlum að innblæstri til vöruþróunar.
Skelltu inn hugmynd að vannýttu hráefni í matargerð á www.mataraudur.is -Hver veit hvernig eða hvar þín hugmynd endar. Sumar hugmyndirnar í fyrra hafa ratað í tímarit, í fjölmiðla og í þýska matreiðslubók!
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Markaðurinn6 dagar síðanLaufey og Collab vinna alþjóðleg verðlaun fyrir bestu markaðsherferðina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFullt hús og mikil stemning á afmælishátíð Café Riis
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanEin lélegasta vínuppskera í þrjá áratugi
-
Markaðurinn7 dagar síðanBeittir Hnífar sameinast nýju fyrirtæki – Glóðin veitingavörur tekur til starfa
-
Markaðurinn7 dagar síðanKomið víða við í heimsókn KAI til Íslands
-
Markaðurinn3 dagar síðanSpennandi starf fyrir yfirmatreiðslumann í Stykkishólmi
-
Markaðurinn3 dagar síðanVillibráðarpaté með landsliði kjötiðnaðarmanna



