Viðtöl, örfréttir & frumraun
Myndir: Veislusýning Múlabergs fór fram úr væntingum
Glæsileg veislusýning fór fram hjá Múlaberg Bistro & Bar á Akureyri síðastliðinn laugardag þegar fjölmörg fyrirtæki komu saman og kynntu vörur og þjónustu fyrir þá sem hyggja á veisluhöld og hátíðleg tilefni.
Boðið var upp á litríka og fjölbreytta dagskrá þar sem gestir gátu kynnt sér það sem í boði er fyrir veislur af ýmsu tagi. Veitingaaðilar buðu jafnframt upp á smakk svo gestir gætu metið gæði og úrval og fengið faglega ráðgjöf um skipulagningu og útfærslu.
Sýningin var haldin í annað sinn, en hún var sett á laggirnar í fyrra. Þá fór aðsókn fram úr öllum væntingum að sögn aðstandenda og ljóst var að þörf var á vettvangi af þessu tagi á svæðinu. Í ár var ekki síðra uppi á teningnum.
Í tilkynningu frá Múlaberg Bistro & Bar á Facebook segir orðrétt.
„Veislusýningin síðustu helgi fór fram úr öllum okkar væntingum.“
Þar kemur jafnframt fram að tæplega 400 gestir hafi sótt sýninguna og að mikið hafi verið rætt um hversu falleg og vel heppnuð hún var.
Aðstandendur segja sérstaklega ánægjulegt að heyra hversu ánægðir gestirnir voru með viðburðinn. Eftir þær viðtökur sé vart annað í stöðunni en að endurtaka leikinn.
„Eftir svona viðtökur er eiginlega ekki spurning, við gerum þetta tvímælalaust aftur á næsta ári,“
segir enn fremur í tilkynningunni.
Með viðburðinum hefur Múlaberg Bistro & Bar fest sig í sessi sem samkomustaður fyrir fagfólk og almenning sem vill kynna sér það besta sem í boði er þegar kemur að veislum og hátíðlegum stundum á Norðurlandi.
Myndir: Facebook / Múlaberg Bistro & Bar
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Markaðurinn5 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn6 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Frétt6 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð













