Markaðurinn
Myndir – Fjölmennur hópur nýsveina tók við sveinsbréfum við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica
Tvöhundruð og fjörutíu nýsveinar úr þrettán iðngreinum útskrifuðust við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica í gær, 19. september. Þessi hópur var úr Byggiðn, VM, MATVÍS og FIT.
Aldrei hafa fleiri nýsveinar fengið sveinsbréfin sín á einu bretti. Útskriftarhópurinn var úr eftirfarandi iðngreinum:
- bakaraiðn
- framreiðslu
- kjötiðn
- matreiðslu
- bifreiðasmíði
- blikksmíði
- stálsmíði
- veiðafæratækni
- húsasmíði
- húsgagnasmíði
- málaraiðn
- múraraiðn
- pípulögnum
Sveinar fengu gjafabréf á námskeið frá Iðunni og aðrar gjafir frá sínum fagfélögum og meistarafélögum. Einnig voru veitt verðlaun fyrir hæstu einkunn á sveinsprófi. Fjölmennastur var hópur nýsveina í húsasmíði sem luku sveinsprófi í vor. Alls luku 145 sveinsprófi á landsvísu og tóku 89 á móti sveinsbréfum sínum í gær, að því er fram kemur á vef IÐUNNAR fræðsluseturs.
Sveinsbréf verða afhent á Akureyri í október en þar munu nýsveinar í framreiðslugreinum og byggingar- og málmgreinum útskrifast. Einnig verður haldin útskriftarhátíð nýsveina í Reykjavík í nóvember.
Myndir frá útskriftinni er hægt að skoða á vef matvis.is með því að smella hér.
Mynd: matvis.is
-
Keppni7 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt3 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“




