Viðtöl, örfréttir & frumraun
Matarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
Um fimmtíu framleiðendur hvaðanæva af landinu koma saman í Hörpu um helgina þegar Matarmarkaður Íslands fer fram dagana 14. og 15. mars. Markaðurinn verður opinn gestum frá klukkan 11 til 17 bæði laugardag og sunnudag og þar gefst fólki tækifæri til að kynnast fjölbreyttum íslenskum matvælum og sérvöru beint frá framleiðendum.
Undirbúningurinn hefst þó fyrr. Framleiðendur byrja að setja upp bása sína eftir klukkan 14 á morgun föstudag og þá skapast strax líf og fjör í Hörpu þegar tugir framleiðenda koma sér fyrir með vörur sínar.
Á markaðnum verður að finna fjölbreytt úrval matvara og sælgætis frá ólíkum landshlutum. Meðal þess sem gestir geta smakkað eða keypt eru handgerð páskaegg frá Siglufirði með sítrónukaramellum, argentínskar smákökur með dulce de leche, grænlenska grálúðu og reykt þorskhrogn frá Höfn í Hornafirði.
Þurrkuð lambahjörtu kynnt í fyrsta sinn
Eitt það sem vekur sérstaka athygli er ný vara frá Snæfellsnesi, þurrkuð lambahjörtu, sem kynnt verða í fyrsta sinn á Íslandi. Á bak við vöruna standa Katrín Lilja Kristinsdóttir og Alexander Scheving Haraldsson sem reka verkefnið Hert Hjarta.

Alexander Scheving Haraldsson og Katrín Lilja Kristinsdóttir kynna nýja vöru sína, þurrkuð lambahjörtu frá Hert Hjarta, á Matarmarkaði Íslands í Hörpu.
Þau hófu tilraunir með vöruna árið 2024 og hafa síðan þróað næringarríkt snakk úr íslenskum lambahjörtum. Á matarmarkaðnum verða þau með sýnishorn í tveimur bragðtegundum, annars vegar með teriyaki bragði og hins vegar kryddað með villtum íslenskum matjurtum.
Handgerð páskaegg frá Siglufirði
Einnig verða hjónin Andri Þór Gíslason og Kristbjörg Bjarnadóttir frá fjölskyldufyrirtækinu SMAKK á Siglufirði með bás á markaðnum. Andri Þór er matreiðslumaður að mennt.
Þau framleiða handgert konfekt og sælgæti og koma með súkkulaðistykki, páskaegg og súkkulaðihúðaðar möndlur.
Páskaeggin þeirra eru fyllt með handgerðu konfekti, möndlum og karamellum. Þar á meðal eru sítrónukaramellur sem innihalda bæði sítrónusafa og sítrónubörk, en framleiðendurnir leggja sérstaka áherslu á að nota náttúruleg bragðefni í vörur sínar.
Matarparadís fyrir sælkera
Matarmarkaður Íslands hefur á undanförnum árum orðið vinsæll vettvangur fyrir smáframleiðendur til að kynna nýjar vörur og hitta neytendur. Um helgina gefst gestum tækifæri til að smakka, kynnast og kaupa matvæli beint frá framleiðendum víðs vegar að af landinu.
Hægt er að fylgjast með frekari upplýsingum á Facebooksíðu Matarmarkaðar Íslands.
Myndir: Facebook / Matarmarkaður Íslands
-
Markaðurinn1 dagur síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni3 dagar síðanÍsak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
-
Keppni2 dagar síðanÞrjátíu ár við stjórnvölinn – Bjarki Hilmarsson heiðraður
-
Keppni3 dagar síðanHver hreppir titilinn Kokkur ársins 2026? Bein útsending
-
Keppni1 dagur síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta
-
Markaðurinn2 dagar síðanNý hnífataska frá Beittum hnífum
-
Markaðurinn1 dagur síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin













