Freisting
Landbúnaðarráðuneyti ákveður tollana
Þótt fjármálaráðuneytið sjái um að afla ríkinu tekna, er það landbúnaðaráðherra sem ákveður tolla á ýmsar matvörur. Þetta bendir Hallgrímur Snorrason, formaður Matvælanefndar forsætisráðherra, á í skýrslu sinni sem birt var í gær.
Hallgrímur gagnrýnir að hvergi sé að finna á einum stað yfirlit um tolla á matvæli, þá eru viðaukar tollskrár sumir úreltir.
Fram kemur í skýrslunni að bæði skatta- og tollaumhverfi matvöru sé mjög flókið og brýnt að einfalda það. Í áranna rás hafi verið samið um frjáls utanríkisviðskipti á mörgum sviðum. Íslendingar hafi viljað tryggja sér tollfrjálsan aðgang að markaði fyrir útflutningsvörur og goldið fyrir með aðgangi fyrir innflutning á innlenda markaði. Stundum hafi tollar almennt verið felldir niður en stundum hafi niðurfellingin verið sértæk.
Niðurstaðan er meðal annars flókin flóra laga og reglugerða um mismunandi tolla, álagningu, niðurfellingu eða undanþágu. Hvergi sé að finna á einum stað yfirlit, sem er aðgengilegt fyrir fólk og framleiðendur, yfir tolla matvæla. Fólk þurfi því að leita gildandi ákvæða í mörgum viðaukum tollskrár, sem sumir hafi hvorki verið gefnir út um árabil, né verið lagaðir að breytingum á lögum sem þeir þó eigi að byggjast á. Þá heyra tollamál ekki aðeins undir fjármálaráðuneytið, sem lögum samkvæmt fer með skattheimtu og tekjuöflun ríkissjóðs, heldur hefur forræði álagningu tolla á ýmsar matvörur verið fengið landbúnaðarráðuneyti. Tollar séu lagðir á samkvæmt tollskrá og ákvörðun landbúnaðarráðherra, á grundvelli tolla- og búvörulaga.
Hallgrímur bendir á í skýrslunni að Íslendingar séu skuldbundnir Alþjóða viðskiptastofnuninni, til að heimila lágmarksinnflutning búvara. Þannig beri íslendingum að leyfa innflutning á 2,7% af heildarneyslu landsmanna af nautakjöti, öðru eins af eggjum og ostum, 1% af innanlandsneyslu af alifuglakjöti, svo dæmi sér tekið. Engar skorður eru hins vegar reistar við magni innflutnings í lögum, ef undan séu skilin skilyrði sem sett eru af heilbrigðisástæðum. Í framkvæmd er það landbúnaðarráðherra, sem ákveður þessar takmarkanir, með reglugerðum.
Greint frá á ruv.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn2 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Frétt6 dagar síðanBapao beef innkallað vegna mögulegrar örverumengunar
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 klukkustund síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri


