Vín, drykkir og keppni
Kampavínsmarkaður í kröppum dansi: Sala hríðféll á árinu 2024
Sala á kampavíni dróst verulega saman árið 2024, með 9,2% samdrætti miðað við árið á undan, samkvæmt Comité Champagne, samtök sem standa vörð um hagsmuni kampavínsframleiðenda í Frakklandi.
Heildarsalan árið 2024 nam 271,4 milljónum flöskum, sem er minnsta sala síðan 2002, að því er fram kemur í tilkynningu frá Comité Champagne.
Á innlendum markaði í Frakklandi minnkaði salan um 7,2% niður í 118,2 milljónir flöskur, sem er lægsta sala síðan 1985. Útflutningur dróst saman um 10,8% og nam 153,2 milljónum flaska.
Maxime Toubart, meðstjórnandi Comité Champagne, benti á að þetta væri ekki tími til að fagna, með verðbólgu, alþjóðlegum átökum og efnahagslegri og pólitískri óvissu í sumum stærstu mörkuðum kampavíns, svo sem Frakklandi og Bandaríkjunum.
Auk þess hafa neytendur í lykilstöðum eins og Bandaríkjunum og Frakklandi minnkað neyslu á þessari lúxusvöru. Ódýrari valkostir eins og prosecco og ensk freyðivín hafa verið að taka yfir hlutverk kampavíns hjá neytendum. Einnig bendir allt til þess að Z kynslóðin (kynslóðin sem sögð er vera sú sem mun breyta öllu) séu að hætta áfengisneyslu í þágu annarra munaðarvara eins og óáfengra kokteila og kannabis.
Þessi þróun hefur haft áhrif á stærstu framleiðendur. Til dæmis tilkynnti Louis Vuitton Moët Hennessy (LVMH), um 12% samdrátt í tekjum af kampavíni og vínum á fyrri helmingi ársins 2024, sem þeir rekja til neikvæðra efnahagslegra og stjórnmálalegra aðstæðna á heimsvísu.
Mynd: úr safni
-
Keppni4 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Frétt7 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Markaðurinn2 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Markaðurinn4 dagar síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?
-
Markaðurinn2 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð




