Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Kaffivagninn opnar á ný: Rótgróin saga fær ferskt upphaf
Kaffivagninn, elsti starfandi veitingastaður á Íslandi, opnar í dag fyrir gesti og gangandi eftir gagngerar endurbætur, endurhönnun og endursköpun, en þessi rótgróni veitingastaður hefur verið hluti af veitingasögu lands og þjóðar frá opnun árið 1935.
Að baki opnuninni stendur veitingamaðurinn Axel Óskarsson, kokkur og reynslubolti í ferðaþjónustu, sem hefur síðustu ár sérhæft sig í heildarupplifun kröfuharðra erlendra ferðamanna og samhliða rekið veitingahúsið Öðling í golfskálanum Oddi ásamt eiginkonu sinni Katrínu Ósk Aldan. Jóhann Jónsson, matreiðslumaður á Laugaási í yfir tvo áratugi, stendur jafnframt vaktina úti á Granda með þeim.

Axel Óskarsson veitingamaður ásamt eiginkonu sinni Katrínu Ósk Aldan og börnum þeirra á útipalli Kaffivagnsins á Granda.
Það er Sólveig Andersen, iðnhönnuður, sem er hugmyndasmiður og hönnuður staðarins, en innandyra hefur allt verið uppfært og endurnýjað, en þó tryggt að andinn og sálin í húsinu yrði áfram til staðar, enda saga staðarins samofin sögu borgarinnar og kynslóðanna.
Kaffivagninn var stofnaður árið 1935 af Bjarna Kristjánssyni og var bókstaflega kaffivagn sem staðsettur var á horni Pósthússtrætis og Tryggvagötu. Guðrún Ingólfsdóttir keypti vagninn af Bjarna í byrjun sjötta áratugar síðustu aldar, en hann var þá á Grandagarði og komust mest 15 manns þar inn.
Fastagestir voru þá helst sjómenn og hafnarverkamenn sem mættu í bítið, enda var Reykjavík á þessum tíma ein stærsta verstöð landsins. Þá kom Guðrun upp fyrsta björgunarhringnum í tengslum við staðinn og þar var einnig eini síminn á Grandanum lengi vel og var hann mikið notaður til ýmissa samtala. 1975 komst Kaffivagninn í núverandi húsnæði, sem nú hefur verið endurnýjað.
„Hér hafa kynslóðirnar mæst og alist upp hlið við hlið áratugum saman og það er mikill heiður að fá að taka þátt í að tryggja að svo verði áfram.
Við höfum gert staðinn fallega upp, sett upp glæsilega og girnilega matseðla fyrir hádegi og kvöld og óvíða er útsýnið skemmtilegra að auki en einmitt héðan. Ég hlakka til að taka á móti gestum á Kaffivagninum og bjóða þeim í lystaukandi ferðalag,“
segir Axel Óskarsson, veitingamaður.
„Góður matur og góður andi eru mínar ær og kýr og hér mun ég standa vaktina með nýjan og glæsilega hádegismatseðla, kvöldmatseðla og allt þar á milli og geri allt til að tryggja einstaka og góða upplifun á þessum elsta veitingastað landsins,“
segir Axel.
Matseðlar
Myndir: aðsendar
-
Bocuse d´Or6 dagar síðan„Að gefast aldrei upp“, segir Sædís Hui í Bocuse d’Or teyminu
-
Frétt5 dagar síðanKrydd og Kavíar taka að sér allt að 1000 máltíðir á dag fyrir Reykjavíkurborg
-
Markaðurinn3 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Frétt2 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn7 dagar síðanRómantísk red velvet terta sem slær í gegn á konudaginn
-
Markaðurinn6 dagar síðanWolt fagnar uppbyggilegu samtali um nýsköpun og framtíð afhendinga í Reykjavík
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanLe Tribute Bransakvöld á Monkey’s & Kokteilbarnum á sunnudagskvöld
-
Markaðurinn4 dagar síðanMS kynnir tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu í byrjun mars








