Starfsmannavelta
Ítalska keðjan Spaghetti House komin í þrot
Breska veitingakeðjan Spaghetti House hefur hætt rekstri eftir að félagið fór í greiðslustöðvun. Veitingakeðjan Spaghetti House, sem fagnaði 70 ára afmæli sínu á síðasta ári, hefur lokað öllum fimm veitingastöðum sínum í London.
Spaghetti House var stofnað árið 1955 af Simone Lavarini og Lorenzo Fraquelli á Goodge Street í London og varð með árunum þekkt nafn í veitingabransanum í London. Á sínum tíma rak keðjan um tólf staði í borginni, en síðustu ár hafði reksturinn dregist saman.
Síðustu staðirnir sem nú hafa verið lokaðir voru staðsettir við Marble Arch, Carnaby Street, Oxford Street, Kensington High Street og Cranbourn Street. Upprunalegi staðurinn á Goodge Street lokaði hins vegar seint á síðasta ári.
Eigandinn Lavval Group hafði einnig opnað ítalska veitingastaðinn A Braccetto í Earl’s Court árið 2024 og kynnti hann sem nýja kynslóð hverfisveitingastaðar, en sá rekstur hefur einnig verið lagður niður.
Myndir: spaghettihouse.co.uk
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Markaðurinn5 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn4 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Keppni5 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn4 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni4 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september
-
Frétt15 klukkustundir síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu





