Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Íslenskir þjónar opna veitingastað á eyjunni Bornholm

Við afhendingu.
F.v. Ásrún Björk Gísladóttir, Loftur Hilmar Loftsson, Tinna Óðinsdóttir og fasteignasalinn Gurli Hansen
Þrír þjónar frá Íslandi opna veitingastaðinn Tre Tjenere eða Þrír þjónar á eyjunni Bornholm sem staðsett er rétt fyrir utan Danmörk.
Á bak við veitingastaðinn standa þjónaparið Tinna Óðinsdóttir og Loftur Loftsson ásamt móður Tinnu, Ásrúnu Gísladóttur.
„Ég og Tinna fluttum hingað í október í fyrra, eftir að við komum fyrst hingað saman sumarið 2016. Við vorum strax hrifin að eyjunni og upplifðum hvað þetta væri spennandi umhverfi fyrir matarunnendur.
Ásrún, mamma Tinnu, flutti til Bornholm í apríl 2018 og það tók ekki langan tíma fyrir okkur að ákveða að gera tilraun að opna veitingastað hérna saman. Við ætlum að ná að opna fyrir páskana en það kemur í ljós eftir nokkrar vikur.“
Segir Loftur í samtali við veitingageirinn.is, aðspurður um hvernig það stóð til að opna veitingastað á Bornholm.
Þjónaþríeykið mun aðallega vinna með íslenskum matreiðslumönnum við opnun staðarins en á matseðlinum verður bæði íslenskur og matur sem einkennir Bornholm.
Bornholm er hátt skrifaður áfangastaður í matarferðamennsku þar sem íbúafjöldinn er 40 þúsund. Eyjan er oft kölluð “Foodie island” og frá Kastrup flugvellinum er 35 mín. flug, sex sinnum á dag. Margir hverjir kannast við Michelin veitingastaðinn Kadeau, sem var t.a.m. með pop-up á Sumac í fyrra, en sá staður er með uppruna sinn frá Bornholm.
Á Bornholm eru einnig „slow beer“ brugghús og hágæða hveiti frá Valsemølle. Bornholm reykhúsin fylgja gömlum hefðum við reykingu á síld og makríl, Bornholm snapsar eru að ryðja sér til rúms, ásamt handverks-sinnepi og fleiru spennandi í matvælaframleiðslu á eyjunni.
Tinna mun bjóða upp á spennandi náttúruvín og vínin frá Georgíu eru í uppáhaldi.
„Á Tre Tjenere erum við fara aftur til kjarna matreiðslunnar, skýrt og gott bragð án afskipta. Þess vegna veljum við vín sem eru unnin samkvæmt aldagömlum aðferðum í víngerð, óáreitt gæðavín“
Segir Tinna, aðspurð um vínúrvalið.
Tre Tjenere er staðsettur í bænum Svaneke, sem hefur fengið viðurkenningu sem fallegasti kaupstaður Danmerkur, í byggingu Hotel Østersøen frá 1839.
„Okkur langar að halda fast í gamla anda þessa sögufræga húss og ætlum þannig að tvinna saman þjónustu, matreiðslu og andrúmsloft.
Við erum að vinna með forngripasölum hérna á eyjunni til þess að innrétta veitingastaðinn til að skapa ákveðið útlit og upplifun sem minnir á rómantík og gleði fjórða áratugsins.“
Segir Loftur.
Þjónarnir þrír benda áhugasömum á að fylgjast með undirbúningnum fyrir opnunina á instagram/tretjenerebornholm og facebook/tretjenere.
Útsýnið frá veitingastaðnum:
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar, bóka borð og sækja um vinnu með því að senda tölvupóst á [email protected].
Google kort:
Myndir: aðsendar
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanNÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanBragð af Loire-dalnum á Matur & Drykk
-
Frétt6 dagar síðanRetreat við Bláa Lónið eina íslenska hótelið með tvo Michelin-lykla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Keppni4 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Markaðurinn5 dagar síðanNathan kynnir nýja virkni sem flýtir fyrir daglegum innkaupum





