Frétt
Hótel Geysir lokar í apríl
Hótel Geysir verður lokað þangað til í lok apríl vegna aðstæðnanna sem skapast hafa vegna kórónuveirufaraldursins COVID-19.
Geysir Glíma veitingahús verður hins vegar opið fyrir þá gesti sem eru að ferðast á Geysissvæðinu. Opnunartímar Geysir Glímu verða í apríl frá kl 11:00 – 17:00. Þar er hægt að fá heitan mat í hádeginu, pizzur, þrjár tegundir af súpum, samlokur, kökur og ljúffengt kaffi svo fátt eitt sé nefnt.
„Við getum ekki beðið eftir því að taka aftur á móti gestum á Hótel Geysi með sömu hlýju og gestrisni og við höfum ætíð gert þegar þessu er lokið. Þar sem ástandið með COVID-19 er stöðugt að breytast munum við upplýsa gesti okkar um næstu skref um leið og þau eru ljós.“
segir í tilkynningu frá Hótel Geysi.
Mynd: facebook / Hótel Geysir
-
Frétt7 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Frétt2 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or23 klukkustundir síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Markaðurinn4 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt3 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni1 dagur síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni






