Freisting
Grundvöllur undanþágunnar löngu brostinn
Fyrr í dag var haldinn fundur í Heilbrigðisnefnd Suðurlands þar sem meðal annars var tekið fyrir málefni Hallarinnar.
Kemur þar fram að nýr rekstraraðili, Glitnir hf. og Sparisjóður Vestmannaeyja hafi sótt um leyfi til rekstur hússins á grundvelli undanþágu Umhverfisráðuneytisins frá 4. apríl sl. frá ákvæðum um hávaðatakmarkanir.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands veitti bráðabirgðarleyfi til 1. maí með tilvísun í undanþágu ráðuneytisins. Í bráðbirgðarstarfsleyfi var sérstaklega tiltekinn 2. liður skilyrða áðurnefndrar undanþágu, að rekstraraðili tilkynnti Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og nágrönnum Hallarinnar tímanlega og með óyggjandi hætti um allar skemmtanir, sem mögulega geta farið yfir hávaðatakmörk. Engar slíkar tilkynningar hafi borist. Ekki hefur borist áætlun um úrbætur, en frestur til þess rennur út 1. maí n.k.
Bókun nefndarinnar:
Með vísun í undanþágu Umhverfisráðherra dags. 4. apríl s.l. varðandi Höllina, Vestmannaeyjum telur Heilbrigðisnefnd Suðurlands grundvöll undanþágunar löngu brostin og mun ekki veita jákvæða umsögn varðandi málið sbr.7. grein laga nr. 7/1998 um hollustuhætti.
Bent er á að málefni Hallarinnar í Vestmannaeyjum hafa farið fyrir úrskurðarnefnd hollustuháttamála og þar verið staðfest að störf, valdsvið og þvingunaraðgerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands gagnvart Höllinni sé innan laga- og reglugerðarramma hennar. Samkvæmt 7. gr. ofangreindra laga skal ráðherra einungis veita undanþágu þegar sérstaklega stendur á undanþágan var fyrst gefin út 13. maí 2005 og gilti þá til 1. nóvember s.l. og telur Heilbrigðisnefnd Suðurlands að það sé löngu tímabært að fyrirtækið uppfylli kröfur til jafns á við aðra starfsemi.
Heilbrigðisnefnd Suðurlandsfer fram á að Umhverfisráðuneytið taki tillit til sjónarmiða nefndarinnar og framlengi ekki undanþágunni. Nefndin fer einnig fram á rökstuðning frá Umhverfisráðuneytinu um forsendur undanþágunnar.
Greint frá á frétta og upplýsingavef suðurlands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
100 myndir frá hátíðarkvöldverði KM
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Spennandi tækifæri
-
Frétt2 dagar síðan
Myllan innkallar heimilisbrauð
-
Markaðurinn3 dagar síðan
World Class barþjónakeppnin – Skráning 2025
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Bóndadagsgjöf ástríðukokksins
-
Pistlar14 klukkustundir síðan
Gæðakerfi: Lykillinn að skilvirkum rekstri, minni sóun og ánægðari viðskiptavinir
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðan
Útlit hins sígilda íslenska Brennivíns hefur verið uppfært – Ákveðin framþróun í bragði Brennivínsins m.a. með tærari kúmenkeim en áður var
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Wolt nær annarri sneið af pítsuumarkaðnum með samningi við Domino’s