Viðtöl, örfréttir & frumraun
Gissur Guðmundsson á ferð og flugi
Gissur Guðmundsson matreiðslumeistari situr ekki auðum höndum eftir að hann var kjörin forseti alheimssamtaka Klúbbs Matreislumeistara (WACS) í maí í fyrra, en hann hefur verið á ferð flugi út um allann heim.
Gissur undirbýr sig núna að fara til Kúbu þar sem hann kemur til með að taka þátt í Matarfestivali sem kemur til með að tanda yfir í þrjá daga, því næst flýgur hann til Sao Palo í Brasilíu þar sem Global Chefs Challenge Semi-Final fyrir America verður haldin og dvelur þar einnig í þrjá daga.
Gissur stoppar stutt hér á íslandi eða ekki nema í einn dag eftir Brasilíuferðina, því að hann kemur til með að fljúga til Moskvu til að dæma í matreiðslu og halda fund með Rússnesska kokkaklúbbnum þar í landi. Þaðan er förinni heitið til Baku í Azerbaijan þar sem Gissur verður heiðursgestur á hátíð í tilefni Islams. Gissur er búinn að vera á ferð og flugi síðan 26. ágúst og hefur verið í Noregi, Bangkok, Sydney, Innsbruk í Austuríki og framundan er Kína, Mið rússland, Bangkok aftur, Brasília aftur, Mílanó, París svo eitthvað sé nefnt.
Í samtali við freisting.is sagði Gissur aðspurður um þau verkefni sem hann hefur verið að vinna í og hvað framundan er:
„Við höfum haft í nóg að snúast, nýtt Certification system verður kynnt í Chile. Ný heimasíða opnuð 1. september á fjórum tungumálum, undirbúningur vegna þings í Chile og margt annað sem við vinnum hörðum höndum að.
Ég er ákaflega heppinn með félaga, Hilmar og Helgi eru komnir á fullt inn í samtökin og búnir að kynnast fortíðinni og eru á fullu að skapa framtíðina með mér. Nýjar reglur eru komnar vegna Heimsmeistara keppninnar á næsta ári og verða þær einnig notaðar á næstu Ólympíuleikum. Einnig er ég ánægður með að við erum ný komnir með 6 alþjóðlega dómara og vona að það muni skapa mörg tækifæri fyrir framtíðina.
Sakna þess að komast ekki á fundi og heyra hvernig gengur, en vona að ég komist á Desember og Janúar fund“, sagði Gissur að lokum.
Heimasíður Wacs:
Mynd: wacs2000.org
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Markaðurinn4 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Markaðurinn4 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Áhugavert2 klukkustundir síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt2 dagar síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
-
Markaðurinn2 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið




