Freisting
George Michael átti að lenda á Turninum í Kópavogi

Ein stórkostlegasta veisla Íslandssögunnar hafði verið skipulögð við opnun veitingastaðarins í Turninum í Smáralind áramótin 2007 til 2008.
Áformað var að heimsfrægi popparinn George Michael myndi lenda á þaki turnsins í þyrlu og birtast veislugestum öllum að óvörum. Hann átti að syngja eitt lag og fljúga svo út í nýársnóttina.
Þegar ráðist var í að skipuleggja veitingastaðinn Nítjándu, sem er á tveimur efstu hæðum turnsins á Smáratorgi var góðærið í hámarki. Til stóð að opna staðinn að kvöldi 31. desember 2007. Uppselt var í partýið löngu áður en áramótin gengu í garð, enda ætlaði þorrinn af elítu Íslands að láta sjá sig í gleðskapnum. Þegar til kastanna kom var svo ekki hægt að halda partýið sem beðið var eftir, vegna þess að gluggakerfi fyrir efstu hæðirnar kom ekki til landsins í tæka tíð. Síðar átti svo meira eftir að ganga á og þannig kom meðal annars upp bruni í turninum í apríl og að lokum var veitingastaðurinn ekki opnaður fyrr en 22. maí. Opnunarteitið var veglegt, þó að heldur hafi verið farið að síga á ógæfuhliðina í íslensku fjármálalífi. Um þrjúhundruð manns voru í opnunarveislunni og nutu veitinga og útsýnis af bestu gerð.
Partýið 22.maí var samt ekkert í líkingu við það sem til stóð í upphafi, sem sennilega hefði komist nálægt því að toppa allt bruðlið á Íslandi og er þó af nógu að taka.
Lesa má um teitið sem aldrei varð í helgarblaði DV sem komið er út.
Greint frá á Dv.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun15 klukkustundir síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn4 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn3 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt7 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni3 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Keppni3 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september



