Markaðurinn
Fyllt úrbeinað læri með döðlum, trönuberjum og camembert – Fullkomin páskamáltíð
Á mörgum heimilum er hefð fyrir því að bera fram lambalæri á páskum. Þessi útgáfa er án efa mín uppáhalds. Fyllt úrbeinað læri frá KEA með camembert, döðlum og trönuberjum er algjörlega framúrskarandi í páskamatarboðið.
Hér ber ég það fram með prosecco bættri skógarsveppasósu, hvítlauks kartöflumús og ofnbökuðum ferskum aspas. Lærið er sérstaklega meyrt og safaríkt. Það er tilvalið að bera fram í stærri veislum og fjölskylduboðum þar sem það er úrbeinað og því auðvelt að skera það niður í mannskapinn auk þess sem það tekur ekki mikið pláss í ofninum.
Innihald:
1 stk KEA helgarlæri með döðlum, trönuberjum og camembert
4 stórar gulrætur
1 stór rauðlaukur
1 búnt ferskur aspas
Ólífuolía
Salt og pipar
Aðferð:
- Skerið gulræturnar langsum í fernt og afhýðið laukinn og skerið í báta.
- Setjið lambið í ofnfast mót eða steikarfat. Raðið gulrótum og lauk í kringum og saltið yfir og piprið.
- Þegar það eru ca 10 mínútur eftir af eldunartímanum, hækkið hitann upp í 200°C og bætið þá aspasnum út á fatið og dreifið örlítið af olíu og salti og pipar yfir aspasinn.
- Þegar lærið er tilbúið, setjið þá álpappír yfir og látið hvíla í 10 mínútur. Takið girnið utan af lærinu og skerið í sneiðar. Raðið á fat ásamt grænmetinu úr skúffunni.
Hvítlauks kartöflumús
1 kg stórar kartöflur, afhýddar og skornar í bita
1 bakaður hvítlaukur (sjá lýsingu)
150ml heit nýmjólk
100g mjúkt smjör
Salt & pipar
2 msk fersk steinselja
- Takið hvítlaukinn og skerið ofan af honum toppinn. Pakkið honum í álpappír og bakið með lærinu. Þegar það fer að líða að því að lærið sé tilbúið, takið þá hvítlaukinn út.
- Afhýðið kartöflurnar og sjóðið í söltu vatni, þegar þær eru orðnar mjúkar í gegn takið pottinn af hellunni og hellið vatninu af.
- Setjið pottinn aftur á helluna, hitið mjólkina. Kreistið hvítlauksgeirana úr hýðinu út í pottinn en óttist ekki magnið af hvítlauk þar sem bragðið verður mjög milt þegar það er búið að baka hann. Bætið við smjöri og mjólk og smakkið til með salti og pipar. Ég nota kartöflustöppu til að merja kartöflumúsina en það er einnig hægt að notast við handþeytara en þá verður að passa að þeyta hana ekki of mikið.
- Setjið ferska steinselju saman við í lokin áður en hún er borin fram.
Prosecco bætt skógarsveppasósa
3-4 saxaðir skalott laukar
1/2 msk olía og 1 tsk smjör
1 dós þurrkaðir skógarsveppir, undirbúnir samkvæmt leiðbeiningum á pakka
2 dl vatn
2 dl prosecco (hvítvín er líka afbragð eða samsvarandi magn af vatni)
1 lambateningur
1 sveppateningur
250ml rjómi
Maizena sósujafnari ef vill
Soð af lambalærinu
Salt og pipar eftir smekk ásamt nokkrum dropum af sósulit
- Byrjið á því að undirbúa skógarsveppina samkvæmt leiðbeiningum á dósinni. Saxið þá svo smátt.
- Saxið laukinn, setjið olíu og smjör út í miðlungsstóran pott. Steikið laukinn við miðlungshita þar til hann verður glær og aðeins farinn að brúnast, bætið við skógarsveppunum og steikið áfram í 2-3 mínútur.
- Bætið vatni, prosecco og teningum saman við og látið suðuna koma upp, sjóðið aðeins niður.
- Bætið við maizena eftir smekk ef vill, rétt aðeins til að þykkja. Setjið rjómann saman við.
- Þegar lærið er tilbúið og búið að hvíla, takið þá soðið úr fatinu og sigtið. Fleytið mestu fitunni af og bætið út í sósuna. Smakkið til með salti og pipar.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn5 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins





