Freisting
Fjöldi þorrablóta haldinn í kvöld á Vestfirðum
Fjöldinn allur af þorrablótum fór fram á Vestfjörðum í kvöld. Hnífsdælingar halda sitt þorrablót í 58. sinn og voru 150 manns búnir að panta miða í dag. Þorrablót Hnífsdælinga hefur einungis fallið niður tvisvar sinnum frá upphafi árið 1947. Í fyrra skiptið var það árið 1949 vegna samkomubanns sem mun hafa verið lagt á vegna smitandi veikindafaraldurs. Seinna skiptið var 2003 þegar það féll niður vegna veðurs.
Stútungur verður haldinn í 72. sinn á Flateyri í kvöld. Þar er nánast upppantað og mikil eftirvænting í loftinu. Skemmtinefndin lofar góðri dagskrá og segir engan óhultan fyrir föstum skotum frá þeim. Hólmvískar konur sjá um þorrablótið þar í bæ í kvöld eins og venja er. Karlarnir launa svo greiðann og sjá um góufagnað þann 18. mars.
Á Bíldudal er metþátttaka á blótinu sem fram fór í kvöld. M.a. ætlar fjöldi brottfluttra Arnfirðinga að mæta og skemmta sér í sínum gamla heimabæ og mun dansinn duna þegar Farfuglarnir stíga á svið.
Þá mun Bolvíkingafélagið í Reykjavík halda sitt 12. blót í kvöld. Þar verða leynigestir, happdrætti og fjöldasöngur svo fátt eitt sé nefnt.
Greint frá á vestfirska vefnum bb.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn5 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins



