Frétt
Ferskar kjötvörur fá heimild til að e-merkja forpakkaðar vörur
Neytendastofa veitti nú í mánuðinum fyrirtækinu Ferskar kjötvörur ehf. heimild til að e-merkja ákveðnar vörur frá þeim. Um er að ræða nautgripahakk og nokkrar stærðir að hamborgurum.
Notkun á e-merki á forpakkaðar vörur er einungis heimil þeim fyrirtækjum sem uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 437/2009 um e-merktar forpakkningar. Í því felst að Neytendastofa hefur tekið út pökkunarferlið og framkvæmt úrtaksvigtun þar sem staðfest er að magn vörunnar sem ætlað er að e-merkja er ávallt innan þeirra marka sem krafist er.
Þetta þýðir að kaupandi vörunnar á að geta treyst því að raunmagn vörunnar er í samræmi við uppgefið magn á pakkningu. Framleiðsluferlið varðandi vigtun vörunnar er það traust að varan á að vera innan leyfilegra fráviksmarka og eins á framleiðslulotan að vera í samræmi við leyfða meðaltalsvigt.
Staðsetning e-merkis er við hliðina á magnmerkingu vörunnar og því ætti að vera auðvelt fyrir neytendur að skoða hvort þessi vottun á magni vörunnar er til staðar.
Mynd: Neytendastofa
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn5 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni2 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn2 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Frétt4 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn



