Frétt
Fær ekki leyfi fyrir hótelskipi
Úlfar Eysteinsson, matreiðslumaður og eigandi veitingastaðarins Þrír frakkar, verður ekki með á Fiskideginum mikla þetta árið og hefur ákveðið að sniðganga Dalvík endanlega eftir að hafnarstjórn Dalvíkur ákvað að veita Úlfari ekki leyfi til að reka hótelskip í höfninni.
Þetta segir Úlfar í samtali við DV en honum finnst þessi ákvörðun vægast sagt sláandi í ljósi þess að hótelskipið yrði mikil aukning við ferðaþjónustu í bænum auk þess sem fjöldi starfa hefðu fylgt rekstrinum.
Maður skilur ekki svona. Í skipinu, sem er hið glæsilegasta og var allt endurnýjað árið 2011, er 120 manna veitingastaður og 62 hótelherbergi. Við ætluðum að hafa opið allt árið en það er engin slík þjónusta á svæðinu.
Úlfar er einn af upphafsmönnum Fiskidagsins mikla og hefur í 13 ár unnið sem sjálfboðaliði við að „koma Dalvík á kortið“ með hátíðinni sem hefur vaxið fiskur um hrygg í gegnum árin.
Við erum þrír aðilar sem eigum skipið. Við byrjuðum í Hafnarfirði en þegar í ljós kom að skipið gæti ekki verið þar, vegna breytinga á höfninni, horfðum við til Dalvíkur. Ég hélt að þar ætti ég hauka í horni þar sem ég er búinn að hjálpa þeim mikið með Fiskidaginn.
Úlfar segir að sótt hafi verið um leyfi fyrir að hafa hótelskipið í höfninni á Dalvík síðasta haust. Á fundi hafnarstjórnar í síðustu viku kom í ljós að ekki væri áhugi fyrir því að hafa hótelskipið í höfninni.
Þetta var endanlegt svar. Þeir sögðu að þetta myndi trufla aðra starfsemi við höfnina,
segir Úlfar og bætir við að um 15 til 30 störf hefðu skapast á svæðinu. Úlfar telur að tveir til þrír valdamiklir aðilar í bænum séu í raun þeir sem standi í vegi fyrir því að hótelskipið fái að vera í höfninni.
Það eru öfl á móti okkur, við höfum frétt af því. Ég verð því að játa mig sigraðan,
segir Úlfar í samtali við DV og bætir við að hann muni sniðganga Dalvík hér eftir.
Greint frá á dv.is
Mynd: Skjáskot af frétt á dv.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn5 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn4 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt3 dagar síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni3 dagar síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Markaðurinn4 dagar síðanYfirkokkur/Verkstjóri óskast
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí




