Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

Eyþór Ás, sonur forseta KM, sækir matreiðslunám alla leið norður til Akureyrar frá Selfossi

Birting:

þann

Eyþór Ás Þórisson

Eyþór Ás Þórisson

Í vetur er kenndur 2. bekkur í matreiðslu í VMA, fyrri bekkurinn af tveimur sem nemendur þurfa að ljúka áður en til sveinsprófs kemur. Einn af nemendunum í námshópnum er Eyþór Ás Þórisson og sækir hann námið um langan veg. Hann býr á Selfossi og því er heldur betur langt fyrir hann að fara í skólann.

Á vefsíðu VMA kemur fram að hann segist jafnan keyra norður á sunnudegi og síðan er kennt frá mánudegi til fimmtudags. Seinnipart fimmtudags liggur leiðin aftur suður og á föstudögum og laugardögum eldar Eyþór mat fyrir gesti á Hótel Geysi. Hann segir að vissulega geti þetta stundum verið töluvert púsluspil en hann kunni vel við námið í VMA og það skipti mestu máli.

Eyþór er 24 ára gamall. Hann rifjar upp að í uppvextinum hafi hann búið á Eyrarbakka, Selfossi og í Bandaríkjunum og verið því í grunnskóla í báðum löndum. Hann fór í Menntaskólann á Laugarvatni en lauk ekki stúdentsprófi, matreiðslan togaði meira í hann.

Eyþór rifjar upp hvernig það kom til að hann fór að starfa á veitingahúsum.

„Einn góðan veðurdag árið 2017 var ég úti að borða á Kaffi Krús á Selfossi með foreldrum mínum. Eigandi staðarins kom til föður míns, sem er matreiðslumeistari og þekkir mjög vel til í þessum bransa, og spyr hvort hann viti um einhvern sem sé að leita sér að vinnu á veitingahúsi. Pabbi sagði að hann gæti prófað að spyrja mig. Næsta dag fór ég á prufuvakt á Kaffi Krús og eftir það fór boltinn að rúlla.

Ég vann um tíma á Kaffi Krús en í janúar 2020 lá leiðin upp á Hótel Geysi þar sem ég hef síðan starfað undir handleiðslu Bjarka Hilmarssonar yfirmatreiðslumanns við A la Carte, morgunverðarhlaðborð og hádegisverðarhlaðborð. Í raun hef ég starfað á Hótel Geysi sem fullgildur kokkur, nema á pappírunum. Ég hef fyrir löngu lokið við áskilinn samningstíma á vinnustað og grunnfögum eins og íslensku, ensku og stærðfræði lauk ég á sínum tíma á Laugarvatni.

Ég fór ekki í gegnum grunndeild matvæla en fer inn í þetta nám í gegnum raunfærnimat vegna þeirrar reynslu sem ég hef aflað mér í faginu. Ég vonast til þess að geta í framhaldinu farið í þriðja bekkinn og lokið náminu fyrir sveinsprófið til þess að fá full réttindi sem matreiðslumaður.“

Eyþór segir að auðvitað hafi það haft töluvert að segja í starfsvali hans að faðir hans, Þórir Erlingsson, hafi lengi starfað í þessum geira og sem stendur starfi hann sem forseti Klúbbs matreiðslumeistara og jafnframt sem framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins.

En hvaða matur skyldi vera í mestu uppáhaldi hjá Eyþóri að elda? Þeirri spurningu er hann fljótur að svara; naut og lamb. En uppáhalds maturinn að borða segir Eyþór að sé tvímælalaust humar.

Mynd: vma.is.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið