Uncategorized
ESB vill róttæka uppstokkun á vínrækt
ESB leggur til róttæka uppstokkun á vínrækt í Evrópu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun í dag leggja fram tillögur um róttæka uppstokkun á vínrækt í álfunni, en markmiðið er að tryggja framtíð vínframleiðslunnar í síðharðnandi samkeppni við vín frá löndum eins og Chile, Bandaríkjunum og Suður-Afríku.
Tillögurnar miða að því að leggja áherslu á gæðavín og draga úr framleiðslu á ódýrari vínum. Lagt er til að vínrækt verði hætt á um einum sjötta af evrópskum vínekrum, eða um 400.000 hekturum.
Alls þekja evrópskar vínekrur um 3,4 milljónir hektara. Verja á um tveim milljörðum evra í niðurgreiðslur til vínbænda fyrir að loka vínekrum.
Nýjaheimsvín hafa snaraukið markaðshlutdeild sína undanfarið, úr 1,7% af útflutningi í heiminum í byrjun níunda áratugarins, í rúmlega 20% nú, samkvæmt könnun alþjóðlegra vínræktarsamtaka. Við þetta bætist að neysla á víni hefur dregist saman í Evrópu, þannig að markaður evrópskra vínbænda hefur bæði minnkað og samkeppnin harðnað.
Offramleiðsla á víni hefur verið aðal vandamálið í evrópskri vínrækt, og telur framkvæmdastjórn ESB að offramleiðslan nemi nú alls um 8,4% af allri vínframleiðslu í álfunni. Um helmingur allrar vínframleiðslu í heiminum fer fram í Evrópu.
Væntanlegar tillögur framkvæmdastjórnarinnar hafa þegar sætt harðri gagnrýni. Stærstu samtök evrópskra vínbænda, Copa-Cogeca, sakar framkvæmdastjórnina um að vilja má út fortíðina og reyna að rústa aldagamalli vínmenningu Evrópu.
Greint frá á Mbl.is
-
Keppni6 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Frétt7 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Markaðurinn1 dagur síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn3 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni
-
Markaðurinn3 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu


