Smári Valtýr Sæbjörnsson
Einn fremsti kokkur heims svipti sig lífi eftir að hafa tapað milljónum í Ponzi-svindli – Eyddi fúlgum fjár í rauðvín sem hann aldrei fékk
Benoit Violier, einn fremsti kokkur heims, svipti sig lífi eftir að hafa lent í fjárhagskröggum sem rekja má til Ponzi-svindls. Violier, sem var 44 ára þegar hann lést, átti og rak Restaurant de l’Hotel de Ville-veitingahúsið nærri Lausanne í Sviss, en veitingahúsið hafði hlotið þrjár Michelin-stjörnur sem er fáheyrt.
Þrátt fyrir velgengnina og þá staðreynd að veitingastaðurinn hafi verið útnefndur sá besti í heimi í lok síðasta árs er talið að Violier hafi tapað miklum fjármunum áður en hann lést, að því er fram kemur á dv.is.
Að sögn svissneska viðskiptablaðsins Bilan hafði Violier varið umtalsverðum fjármunum til kaupa á sjaldgæfum tegundum af rauðvíni. Að sögn Bilan kostaði hver flaska á bilinu 2,5 til 5 milljónir króna og voru þær seldar til nokkurra af bestu veitingastaða heims. En flöskurnar skiluðu sér aldrei og sátu veitingahúsaeigendur eftir með sárt ennið.
Fullyrt hefur verið að fyrirtæki að nafni Private Finance Partners, svissneskt fyrirtæki með höfuðstöðvar í Sion, hafi staðið að baki Ponzi-svindlinu. Að því er Bilan greinir frá var sama flaskan stundum seld til þriggja eða fjögurra veitingahúsa.
Violier og veitingahús hans er talið hafa tapað allt að 150 milljónum króna á svindlinu, en umrætt fyrirtæki, Private Finance Partners, var úrskurðað gjaldþrota þann 30. nóvember síðastliðinn.
Violier var virtur kokkur, en hann var lagður til hinstu hvílu á laugardaginn í heimalandi sínu, Frakklandi. Sem fyrr segir var veitingahús hans valið það besta í heimi af France’s La Liste-tímaritinu, en þúsund veitingastaðir um allan heim voru tilnefndir.
Greint frá á dv.is
Mynd: restaurantcrissier.com
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni3 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn3 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt3 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt5 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn2 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul



