Vín, drykkir og keppni
Dwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana
Tequila-vörumerkið Teremana, sem er í eigu leikarans Dwayne Johnson, hyggst auka verulega við alþjóðlega útbreiðslu sína á næstu misserum. Áætlanir gera ráð fyrir innkomu á yfir tuttugu nýja markaði í Evrópu, Afríku og Asíu á næstu tólf mánuðum.
Útrásin er unnin í samstarfi við dreifingarfyrirtækið Mast-Jägermeister og nær meðal annars til landa á borð við Brasilíu, Spán, Frakkland, Suður-Afríku, Japan og Indónesíu. Þetta er framhald af fyrri stækkun vörumerkisins sem þegar hefur haslað sér völl í Evrópu, Ástralíu og Mið-Austurlöndum, auk markaða eins og Bretlands, Þýskalands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna.
Dwayne segir markmiðið frá upphafi hafa verið stærra en hefðbundin tequila-framleiðsla. Áherslan hafi legið á að miðla ákveðinni hugmyndafræði, þar sem jákvæð orka, þakklæti og tengsl fólks skipa lykilhlutverk. Með frekari útbreiðslu fái fleiri tækifæri til að kynnast handverkinu og þeim gildum sem liggja að baki hverri flösku.
Teremana var sett á markað árið 2020 og hefur vöxtur verið hraður. Árið 2023 seldist vörumerkið í yfir einni milljón kassa á ári, sem náðist innan þriggja ára frá stofnun. Þar með fór Teremana fram úr tequila-vörumerkinu Casamigos í sölumagni, en það er tengt leikaranum George Clooney.
Drykkurinn er framleiddur í eigin eimingarhúsi í Jalisco í Mexíkó og er fáanlegur í þremur útgáfum, blanco, reposado og añejo. Að baki verkefninu standa Dwayne ásamt samstarfsaðilum, þar á meðal Lopez-fjölskyldunni sem sér um framleiðsluna.
Hjá Mast-Jägermeister segir forstjórinn Michael Volke að stækkunin endurspegli bæði gæði vörunnar og styrk samstarfsins, að því er fram kemur í tilkynningu. Fyrirtækið hafi það hlutverk að koma Teremana á framfæri við nýja neytendur víða um heim og byggja áfram á þeim grunni sem þegar hefur verið lagður.
Richard Black, forstjóri Teremana segir meðal annars í tilkynningu að hann tekur í svipaðan streng og segir að vöxturinn hafi frá upphafi verið markviss, án þess að gefa eftir í gæðum eða handverki. Viðtökurnar á nýjum mörkuðum sýni að eftirspurn eftir hágæða tequila sé að aukast, og með frekari útbreiðslu skapist tækifæri til að ná til nýrra markhópa.
Myndir: teremana.com
-
Markaðurinn6 dagar síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni6 dagar síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Markaðurinn6 dagar síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
-
Markaðurinn5 dagar síðanMata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna
-
Keppni3 dagar síðanJakob Alf stóð uppi sem sigurvegari







