Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Dunkin’ Donuts í Kringluna | Nýi staðurinn verður með sætisaðstöðu fyrir allt að 30 manns

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin´ Donuts á Íslandi og Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar.
Kaffihúsakeðjan Dunkin´ Donuts opnar sitt annað kaffihús á Íslandi í október næstkomandi og verður það staðsett á fyrstu hæð í Kringlunni. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin´ Donuts á Íslandi, er ánægður með staðsetninguna og segir það eðlilega þróun mála að annað kaffihúsið hér á landi verði í verslunarmiðstöðinni.
Viðskiptavinir Kringlunnar eru fjölmargir daglega og það er ánægjulegt að geta boðið þeim upp á frekara úrval af góðum veitingum á viðráðanlegu verði. Við verðum með hraða og góða þjónustu og sama vöruúrval og á kaffihúsinu okkar á Laugavegi. Því verður hægt að setjast niður í rólegheitunum eða grípa með sér til dæmis kjúklingavefju, beyglu með laxi og rjómaosti og svo að sjálfsögðu hágæða kaffi og kaffidrykki. Þeir sem eru í þeim gírnum að leyfa sér smá sætindi geta skellt sér á einn kleinuhring, nú eða kassa og leyft öðrum að njóta með sér,
segir Árni.
Gert er ráð fyrir að ráða þurfi í kringum 10 manns fyrir opnunina og eftir að þeim ráðningum lýkur eru um 30 manns í vinnu hjá Dunkin´ Donuts á Íslandi. Árni Pétur segir að virkilega vel hafi tekist til í ráðningarmálunum til þessa og að mikill áhugi sé fyrir því að starfa á kaffihúsum keðjunnar, en til stendur að staðirnir verði orðnir 16 talsins eftir fimm ár.
Það er óhætt að segja að mikið hafi mætt á starfsfólkinu til þessa enda viðtökurnar við fyrsta staðnum á Laugavegi verið vonum framar. Við erum með harðduglegt fólk í vinnu, sem hefur fengið góða þjálfun en við trúum því að þjálfunin skili sér til viðskiptavina okkar með glaðlegri og öruggri þjónustu,
segir hann.
Yfir 180 verslanir, veitingastaðir og þjónustuaðilar eru í Kringlunni en verslunarmiðstöðin er sú stærsta í Reykjavík. Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, fagnar því að samningar hafi náðst um komu Dunkin´ Donuts þangað inn.
Við trúum því að þessi viðbót eigi eftir að leggjast vel í viðskiptavini okkar enda er Dunkin´ Donuts sterkt vörumerki sem virðist vera mikill áhugi fyrir hjá landsmönnum. Við viljum bjóða viðskiptavinum Kringlunnar upp á val þegar kemur að verslun, veitingum og þjónustu og þetta er einn liðurinn í því,
segir Sigurjón.
Myndir: Aðsendar
-
Keppni5 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or5 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Keppni2 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn5 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“






