Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Duck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
Veitingastaðurinn Duck & Rose mun loka dyrum sínum að kvöldi konudagsins, 22. febrúar næstkomandi, samkvæmt tilkynningu frá staðnum. Þar með lýkur ákveðnum kafla í sögu staðarins, sem hefur frá upphafi lagt áherslu á stemningu, samveru og metnaðarfulla framreiðslu.
Gestir eru hvattir til að líta við í síðasta sinn í vikunni, njóta andrúmsloftsins og þess sem staðurinn hefur haft upp á að bjóða. Lúxus brunch verður í boði alla daga fram að lokun og stefnt er að því að kveðja með sömu frábæru stemningu og einkennt hefur reksturinn frá fyrsta degi.
Í tilkynningunni kemur fram að nýr staður, Gamla Reykjavík, muni opna á sama stað föstudaginn 27. febrúar. Nánari upplýsingar um nýja staðinn verða kynntar á næstu dögum og eru gestir hvattir til að fylgjast með.
Sérstök athygli er vakin á því að gjafabréfaeigendur eru hvattir til að nýta gjafabréf sín í vikunni, þó munu öll gjafabréf gilda áfram á nýja staðnum sem inneign að upphæð. Þeir sem eiga borðabókanir eftir 22. febrúar þurfa að gera nýjar ráðstafanir, en karaoke-bókanir halda gildi sínu nema óskað sé eftir breytingum.
Að lokum þakkar staðurinn gestum sínum fyrir samfylgdina, hlýjuna og ógleymanlega stemningu á liðnum misserum.
Mynd: Facebook / Duck & Rose
-
Frétt2 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Frétt6 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni3 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni3 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn4 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars






