Vertu memm

Markaðurinn

Cyril Camus hélt vel heppnaða koníakssmökkun í Reykjavík – Myndaveisla

Birting:

þann

Cyril Camus hélt vel heppnaða koníakssmökkun í Reykjavík - Myndaveisla

Anne, Cyril og Julien frá Camus

Mikil stemning ríkti á Hilton Reykjavík Nordica þann 12. mars þegar hið virta franska koníakshús Camus hélt sérstaka koníakssmökkun fyrir gesti úr veitinga- og víngeiranum. Sérstakur gestur kvöldsins var Cyril Camus, erfingi og fulltrúi fimmtu kynslóðar Camus-fjölskyldunnar, sem heimsótti Ísland til að leiða smökkunina sjálfur.

Á viðburðinum fengu gestir að smakka úrval af koníaki frá Camus á meðan Cyril Camus fór yfir sögu hússins, framleiðsluaðferðir og þá sérstöðu sem hefur gert Camus að einu þekktasta fjölskyldurekna koníakshúsi heims. Gestir sýndu mikinn áhuga á arfleifð hússins og þeim handverkshefðum sem liggja að baki framleiðslunni.

Cyril Camus hélt vel heppnaða koníakssmökkun í Reykjavík - Myndaveisla

Jakob og Gunni Palli

Viðburðurinn var vel sóttur af fagfólki úr veitingageiranum og öðrum gestum, sem nýttu tækifærið til að dýpka þekkingu sína á koníaki og kynnast vörumerkinu nánar beint frá fjölskyldunni sem stendur að baki því. Líflegar umræður sköpuðust um bragðeinkenni, uppruna og möguleika Camus-koníaks á íslenskum markaði.

Að lokinni smökkun nutu gestir léttara veitinga og vinnings Camus-kokteils frá Svavari Helga á Tipsý bar.

Cyril Camus hélt vel heppnaða koníakssmökkun í Reykjavík - Myndaveisla

F.v. Óðinn Jóhannsson, Frosti Olgeirsson og Þorleifur „Tolli“ Sigurbjörnsson

Heimsókn Cyril Camus til Íslands markar mikilvægt tækifæri til að efla tengsl Camus við íslenskan veitinga- og vínmarkað og kynna fyrir íslenskum fagmönnum þá fjölbreytni og gæði sem koníakshúsið hefur upp á að bjóða.

Globus hf hefur verið umboðsaðili fyrir Camus síðan 1977 og fagna því 50 ára samstarfsafmæli 2027.

Meðfylgjandi myndir tók Þorgeir Ólafsson.

Myndir: Þorgeir Ólafsson.

Almenn umfjöllun, víndómar og viðtöl, blandað ýmsum fróðleik um Ísland, mat, drykki og fleira því tengt.

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið