Markaðurinn
CIAO fyrir fageldhús – Hráefni sem stenst kröfur meistaranna
Við kynnum með stolti CIAO, hágæða vörulínu af tómatvörum framleidda af fjölskyldufyrirtækinu Compagnia Mercantile D’Oltremare í San Marzano á Ítalíu.
Fyrirtækið var stofnað árið 1979 af Lino Cutolo. Með ástríðu fyrir ítalskri matargerðarhefð og metnað til að deila bestu afurðum Ítalíu með umheiminum, byggði hann upp fyrirtæki sem hefur síðan þá fest sig í sessi sem einn fremsti framleiðandi ítalskra tómatvara. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til Salerno, skammt frá Napólí, þar sem tómatahefðin er samofin menningunni. Nafnið „CIAO“ var valið vegna þess að það er þekktasta kveðja Ítalíu, hlýleg, alþjóðleg og býður fólk velkomið, rétt eins og góð máltíð.
Það er engin tilviljun að CIAO vörurnar eru í hávegum hafðar hjá fremstu matreiðslumönnum heims. Fyrirtækið er opinber samstarfsaðili Associazione Verace Pizza Napoletana (AVPN). Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá eru það samtök sem vernda heiður hinnar einu sönnu Napólí-pítsu. Ef þú vilt ná fram hinu eina sanna ítalska bragði, þá er CIAO lykilhráefnið.
Leyndarmálið á bak við bragðið liggur í Campania-héraðinu. Steinefnaríkur eldfjallajarðvegurinn í kringum eldfjallið Vesúvíus, paraður við hlýja hafgoluna frá Miðjarðarhafinu skapar vaxtarskilyrði sem finnast hvergi annars staðar. Þetta skilar sér í tómötum með hátt náttúrulegt sykurinnihald, lágt sýrustig og gefur þetta einstaka svæði tómötunum sætu, fyllingu og jafnvægi í bragði.
CIAO leggur mikla áherslu á nútímalega framleiðsluhætti til að varðveita ferskleikann. Tómatarnir eru tíndir þegar þeir eru fullkomlega þroskaðir og tekur ferlið frá uppskeru þar til varan er fullunnin aðeins nokkrar klukkustundir. Aðferðirnir tryggja að bragð, litur og næringarefni varðveitist fullkomlega.
„Markmið okkar er einfalt: að færa heiminum bragðið af ítalskri náttúru.“
Segir Lino Cutolo, stofnandi.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju





